JOY JOY er ísbúð og veitingastaður. Við erum með margar gerðir af ís og bjóðum líka upp á safa/boost, og samlokur

28/11/2019

Kæru viðskiptavinir
Sl. mánudag 25. nóvember ákváðum við eigendur að loka JOY í óákveðinn tíma og vonuðumst við eftir að mæta aftur til leiks þegar daginn fer að lengja. Þekkt er að veitingarekstur er snúinn í Vestmannaeyjum yfir vetrartímann og hefur það einnig átt við okkar rekstur síðustu ár. Við þykjumst vita í gegnum tíðina að ykkur, viðskiptavinum okkar, þyki gott að koma til okkar og að þið upplifið það að mikið er lagt upp úr því að hafa hlutina í lagi. Við höfum fengið hrós frá ykkur sem okkur þykir virkilega vænt um.
Okkur langar líka að segja nokkur orð vegna fréttar á mbl.is í gær, miðvikudaginn 27. nóvember, um hótanir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands í okkar garð. Við höfðum vissulega fengið ítrekaðar athugasemdir en getum fullvissað ykkur um að þær athugasemdir snúa ekki að þeim vörum sem seldar eru eða hreinlæti tengdri framleiðslu á matvælum. Athugasemdirnar snúa helst að gólfefni í sal, málningu á hillum og veggjum á þurrlager og að daglegri skráningu á þrifum og hitastigi í kælum hafi verið ábótavant. Stefnan var vissulega að taka tillit til athugasemda eftirlitsaðila á meðan lokun væri.
Okkur finnst líka umhugunarvert að opinber eftirlitsaðili, sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er, geti sent frá sér gögn til þriðja aðila áður en tímafrestur eiganda er liðinn til að koma með svör um úrbætur. Til upplýsinga þá höfðum við frest út miðvikudaginn 27. nóvember til að svara athugasemdum eftirlitsins. Umrædd frétt á mbl.is byggð á gögnum frá Heilbrigðiseftirlitinu birtist hins vegar á mbl.is kl. 05.30 þann 27. nóvember.
Að fyrirtæki og einstaklingar sem þar liggja að baki séu teknir af lífi opinberlega á mjög villandi hátt og það áður en að frestur til úrbóta er liðinn, er mjög alvarlegt og til þess fallið að við sem eigendur komum til með að fá skýringar á því.
Að endingu viljum við þakka ykkur fyrir ánægjuleg viðskipti.

Erna Dögg og Hörður Orri

Lítill bragðarefur á 800 kr. í dag sunnudag 🍦
24/11/2019

Lítill bragðarefur á 800 kr. í dag sunnudag 🍦

Hvað er betra en SÚKKULAÐIÍS í þessu dásamlega veðri 🌞🍦🍫
18/07/2019

Hvað er betra en SÚKKULAÐIÍS í þessu dásamlega veðri 🌞🍦🍫

Gleðilega Páska
17/04/2019

Gleðilega Páska

Opið í dag, láttu sjá þig :)
02/01/2019

Opið í dag, láttu sjá þig :)

Gleðilega hátíð!Hvernig hljómar smá engifer í dag...
27/12/2018

Gleðilega hátíð!
Hvernig hljómar smá engifer í dag...

Erum líka með sniðug gjafabréf fyrir jólasveina.
18/12/2018

Erum líka með sniðug gjafabréf fyrir jólasveina.

Jólasveinar, minnum á gjafabréfin vinsælu 🎅🏼
12/12/2018

Jólasveinar, minnum á gjafabréfin vinsælu 🎅🏼

Ef þú hefur ekki smakkað hvítu súkkulaðidýfuna okkar þá mælum við með því að þú gerir það sem fyrst 👌😋🍦
06/12/2018

Ef þú hefur ekki smakkað hvítu súkkulaðidýfuna okkar þá mælum við með því að þú gerir það sem fyrst 👌😋🍦

23/11/2018

BLACK FRIDAY

Send a message to learn more

Ný vika, ný markmið!
05/11/2018

Ný vika, ný markmið!

Address

Vesturvegi 5
Vestmannaeyjar
900

Opening Hours

Monday 11:00 - 22:00
Tuesday 11:00 - 22:00
Wednesday 11:00 - 22:00
Thursday 11:00 - 22:00
Friday 11:00 - 22:00
Saturday 11:00 - 22:00
Sunday 11:00 - 22:00

Telephone

+3544813883

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when JOY posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share