Einar Björn Árnason er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum þar sem hann hefur komið sér fyrir í Höllinni, með veisluþjónustuna „Einsa kalda“ og með veitingastað undir sama nafni á hótel Vestmannaeyjar. Einar útskrifaðist sem matreiðslumaður frá M.K. vorið 2007 með ágætiseinkunn, en áður en hann hóf matreiðslunám kom hann við í bakaranámi og starfaði sem bakari í 4 ár, en sú reynsla hefur komið sér
vel og auðgað hann sem matreiðslumann. Einar lauk síðan meistaranámi sínu vorið 2012.
Það var Grímur Þór Gíslason „plokkfisk-kóngur Íslands“sem fékk Einar í kokkanámið og „ól hann upp" ef svo má segja. Hann lærði sem sagt hjá Grími og kláraði svo samning sinn á Óðinsvéum, undir leiðsögn Sigga Hall. Með náminu starfaði Einar á veitingastaðnum Argentínu. Einar ann sínum heimabæ afar heitt og hann var því alltaf ákveðinn í að snúa aftur til Eyja, þar sem hann býr nú ásamt eiginkonu og þremur börnum.
Í eldamennskunni finnst Einsa mest gaman að töfra fram ljúffenga sjávarrétti og fyrir það er hann rómaður. Þessi áhugi hans ætti kannski ekki að koma á óvart, þar sem nálægðin við fengsæl fiskimið gera honum kleift að fá spriklandi ferskan fisk daglega. The restaurant Einsi Kaldi is located on the ground floor of Hotel Vestmannaeyjar. The house itself is a historic place, where a lot of establishments have been located, such as a cinema, a soda factory, a printshop and later on it was used as a storage building. The house collapsed during the volcano eruption of 1973 but was rebuilt again in 1975. The owner of the restaurant Einar Björn Árnason „Einsi kaldi“, local man, born and raised in Vestmannaeyjar, enjoys greatly to put his magic and imagination into delicious seafood-dishes and for that he is renowned. His interest in working with fresh fish is not really surprising since he is so close to one of our richest fishing grounds, which gives him the opportunity to obtain fresh products from the boats daily. He actually puts a great emphasis on obtaining his products locally. Since Einar Björn opened his restaurant he has earned himself a reputation for culinary perfection.