11/05/2026
Fjölskyldudagur nk. fimmtudag! Við hvetjum ykkur til að mæta og eiga skemmtilega stund saman.
Við verðum á staðnum með smakk fyrir alla ásamt girnilegum veitingum til sölu. Þar verða meðal annars ferskar acai-skálar og ljúffengir smoothie-drykkir fyrir þá sem vilja fá sér eitthvað hollt og gott.
Hlökkum til að sjá ykkur og njóta saman heilsusamlegrar og skemmtilegrar stundar!
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu! ⚽️🏰🎶
Eftir frábæran fjölskyldudag um daginn ætlum við að bjóða upp á annan skemmtilegan viðburð þar sem fjölskyldur geta komið saman, hreyft sig, nært sig vel og átt góða stund saman.
Viðburðurinn fer fram á fimmtudaginn (frídagur) kl. 10:00–14:00 í íþróttahúsinu (Salur 1). Allir velkomnir - á öllum aldri! 🥳
Í boði verða:
⚽️ Boltaleikir, þrautabraut og hoppukastali
🎧 Doctor Victor spilar ljúfa tóna
🧋 Eydís Ísbúð verður með léttar veitingar til sölu og smakk í boði
🎪 Og fleira skemmtilegt!
Það var virkilega gaman að sjá hversu margir mættu síðast og tóku þátt, og við vonum að stemningin verði jafn góð núna svo við getum haldið áfram að halda fjölskyldudaga hér í Eyjum. Hlökkum til að sjá ykkur! ❤️