Skálholt

Call Directions Website

Skálholt Skálholt er mennta- og menningarsetur Þjóðkirkjunnar. Skálholt – a thousand years of history Concerts are held on most weekends during summer.

You can find cultural events and religious services all year round in Skálholt. A history path is marked out around Skálholt, rich in history at every step, and guided tours are available for groups. We offer excellent facilities for conferences, workshops, retreats and educational and cultural tourism. The conference room seats 40 – 50 people and can be divided into three smaller rooms. Accommodation: Full accommodation is provided for up to 45 people in single and double rooms with and without private bath. An adjacent camp within short walking distance (4-5 min.) can accommodate 21 people in simple housing at lower rates. Food service: The restaurant can serve 100 people. It offers, among other things, traditional Icelandic food made by recipes from the 12th century for groups. The dinners for traditional Icelandic food need to be ordered in advance. Event and tourist management Skálholt

Karlakórinn Orphei Dränger heldur tónleika í Skálholtsdómkirkju föstudaginn 16. október kl 19.00.Um er að ræða 100 manna...
06/10/2026

Karlakórinn Orphei Dränger heldur tónleika í Skálholtsdómkirkju föstudaginn 16. október kl 19.00.

Um er að ræða 100 manna karlakór sem er talinn einn besti kór í heimi. Ljóst er að von er á einstakri tónlistarupplifun í Skálholti.

Kórinn var stofnaður í Uppsölum árið 1853 og hefur í meira en 170 ár sameinað ríka norræna kórhefð og framsækna tónlistarsköpun. Hann þekktur fyrir þéttan og samstilltan söng, skýra tónmyndun og nákvæman flutning. Kórinn ræður yfir miklu styrkleikasviði, frá hljóðlátum og fíngerðum söng til kraftmikilla kafla, og leggur áherslu á skýra túlkun og fjölbreytt blæbrigði.

Kórinn hefur ferðast víða um heim og starfað með við fremsta tónlistarfólk heims sem hefur skipað honum í fremstu röð karlakóra.

Stjórnandi er Cecilia Rydinger og undir hennar stjórn flytur kórinn fjölbreytta efnisskrá með verkum eftir meðal annarra Hugo Alfvén, Eleanor Daley, Knut Nystedt og Franz Schubert, auk íslensku tónskáldanna Hildar Guðnadóttur og Þorkels Sigurbjörnssonar. Píanóleikari er Folke Alin.

Þetta er fyrsta heimsókn kórsins til Íslands frá árinu 2002 – viðburður sem unnendur kórsöngs og lifandi tónlistar ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara.

Miðaverð 5000 kr. miðasala á Tix.is https://tix.is/event/22205/orphei-dranger-karlakor-tonleikar

A.m.k. 13 hrafnar (Corvus corax) héldu hrafnaþing í Skálholti í dag. The ravens held a meeting in Skálholt today.
02/10/2026

A.m.k. 13 hrafnar (Corvus corax) héldu hrafnaþing í Skálholti í dag. The ravens held a meeting in Skálholt today.

28/09/2026

HELGIHALD Í SKÁLHOLTSPRESTAKALLI Í OKTÓBER

4. október er að venju guðsþjónusta í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl. 11. Margrét Steinunn Guðjónsdóttir djákni þjónar og Jón Bjarnason organisti leiðir safnaðarsöng.
Sérstakir gestir okkar þennan sunnudag eru félagar úr kórnum Domus Vox sem taka þátt í messunni en kórinn hefur æfingabúðir í Skálholti þessa helgi. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við eigum gott samfélag.
Innilega velkomin!

11. október verður messa í DÓMKIRKJUNNI okkar kl. 11. Sóknarpresturinn, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari. Sérstakir og dýrmætir gestir eru bræður og systur frá Ástjarnarkirkju, og presturinn þeirra, sr. Bolli Pétur Bollason, prédikar. Jón Bjarnason organisti leiðir söfnuðinn í söng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við eigum gott samfélag. Innilega velkomin!

Kl. 14 þennan dag er messa í TORFASTAÐAKIRKJU. Þar þjónar sóknarprestur fyrir altari og prédikar. Jón organisti stígur harmóníumið og leiðir okkur í messusöngnum. Brynjar bóndi Sigurðsson er meðhjálpari. Strax eptir messu verður AÐALSAFNAÐARFUNDUR. Ekki síst þess vegna, eru öll sóknarbörn í Torfastaðasókn hvött til að mæta í messu.

18. október verður að venju messa í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Jón Bjarnason, dómorganisti, leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við eigum gott samfélag. Innilega velkomin!

25. október er messa kl 11 í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU. Sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikari dagsins er Cand. Theol. Þorgils Hlynur Þorbergsson, sem á 30 ára útskriftarafmæli sem guðfræðingur þessa helgi. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við eigum gott samfélag. Innilega velkomin!

HELGIHALDIÐ Í SKÁLHOLTSPRESTAKALLI Í SEPTEMBER 2026 Í septembermánuði er svo sérstök orka og líf. Sumarið er að klárast ...
03/09/2026

HELGIHALDIÐ Í SKÁLHOLTSPRESTAKALLI Í SEPTEMBER 2026

Í septembermánuði er svo sérstök orka og líf. Sumarið er að klárast og hauststörfin taka við. Meðal þeirra er fermingarstarfið og hér í Skálholti hlökkum við til starfsins með frábærum fermingarkrökkum og fjölskyldum þeirra.

Svona lítur helgihaldið í dómkirkjunni okkar í september:

6. september er messa í Skálholtsdómkirkju kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað og svo er kaffisopi á eftir. Innilega velkomin.

13. september er messa í Skálholtsdómkirkju kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað og svo er kaffisopi á eftir. Innilega velkomin.

20. september er messa í Skálholtsdómkirkju kl. 11. Þar eru fermingarbörn vetrarins og aðstandendur þeirra sérstaklega boðin velkomin. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur og Margrét Steinunn Guðjónsdóttir djákni prédika og þjóna fyrir altari. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað og svo er kaffisopi á eftir. Innilega velkomin.

27. september er messa í Skálholtsdómkirkju kl. 11 með þátttöku KSS-inga frá því í gamla daga. Sóknarprestur og aðrir eldgamlir KSS félagar annast samkomuhaldið og tónlistina. Innilega velkomin, barnaborðið er ávallt á sínum stað og svo er gott kirkjukaffi á eftir.

Góð heimsókn í Skálholt og á Mosfell í dag frá finnsku kirkjunni. Norden är i orden 🙏🏼
29/08/2026

Góð heimsókn í Skálholt og á Mosfell í dag frá finnsku kirkjunni. Norden är i orden 🙏🏼

Það eru þrjár guðsþjónustur í Skálholtsprestakalli þessa helgi. Í DAG hittumst við í skátamessu í stórkostlegu ÚLFLJÓTSV...
29/08/2026

Það eru þrjár guðsþjónustur í Skálholtsprestakalli þessa helgi.

Í DAG hittumst við í skátamessu í stórkostlegu ÚLFLJÓTSVATNSKIRKJU kl 14, þar sem við syngjum og tröllum, þökkum fyrir landið og skóginn, og eigum saman kaffisamfélag á eftir í Gilwell-skálanum.

Á MORGUN hittumst við í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl 11, þar þjónum við Margrét Steinunn Guðjónsdóttir djákni og Jón Bjarnason organisti. Skúli Sæland er okkar góði kirkjuvörður og hellir upp á. Barnaborðið er ávallt á sínum stað.

Svo er messað í undurfögru HAUKADALSKIRKJU kl 14 þar sem er alltaf magnað að eiga samfélag. Kirkjukaffið verður epískt, að venju. Við Jón Bjarnason þjónum og tónum, Eyja er meðhjálpari og Einar Gíslason kemur með kleinurnar.

Innilega velkomin að eiga helgihaldið með okkur þessa helgi ♥️

Í gær var Skálholti afhent til varðveislu frumeintak af Steinsbiblíu, sem er þriðja íslenska biblíuþýðingin, prentuð á H...
22/08/2026

Í gær var Skálholti afhent til varðveislu frumeintak af Steinsbiblíu, sem er þriðja íslenska biblíuþýðingin, prentuð á Hólum í Hjaltadal, árin 1728-1734.

Það voru afkomendur hjónanna Gísla Guðmundssonar og Guðríðar Erlendsdóttur sem færðu staðnum eintakið. Þessi biblía á áhugaverða sögu en hún fór vestur um haf með innflytjendum til Nýja Íslands í Kanada og komst í eigu Gísla og Guðríðar þegar þau voru búsett í Winnipeg á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.

Þorsteinn Pálsson, formaður stjórnar Skálholts, veitti Steinsbiblíunni viðtöku fyrir hönd Bókhlöðunnar í Skálholti og þakkaði við það tilefni hlýjan hug og traust sem felst í þessari dýrmætu gjöf.

Þriðjudaginn 25. ágúst verða Peter Máté og Laura Varga með tónleika á píanó og þverflautu í Skálholtskirkju kl. 20. Pete...
19/08/2026

Þriðjudaginn 25. ágúst verða Peter Máté og Laura Varga með tónleika á píanó og þverflautu í Skálholtskirkju kl. 20.

Peter frá Tékklandi og Laura frá Ungverjalandi hafa leikið mikið saman og hér munu þau flytja ljúfa tónlist úr ólíkum áttum.

Aðgangur er ókeypis - innilega velkomin!

Address

Skálholt
Selfoss
806

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00
Saturday 09:00 - 18:00
Sunday 09:00 - 18:00

Telephone

+3544868801

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skálholt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share