Starfsfólk Kaffi krúsar leggur metnað sinn í að hafa ferskleikann í 1. Kaffi krús er staðsett í hjarta Selfossbæjar og er veitingarstaðurinn á tveimur hæðum og tekur samtals 72 í sæti. Á góðviðrisdögum er sólpallurinn í garðinum sennilega vinsælasti staðurinn á Selfossi.
Á hverjum degi bjóðum við upp á 10 tegundir af heimabökuðum kökum. Þar má m.a finna uppskriftir af kökum sem elt hafa kynslóð
ir. Uppskrift af köku sem var vinsæl undir eyjafjöllum um miðja síðustu öld. Ostakökur sem unnið hafa hina árlegu ostakökusamkeppni Kaffi krúsar og kökuuppskriftir sem fylgt hafa húsinu í 20 ár. Auk þess eru kökur og tertur með framsæknum uppskriftum sem kitla bragðlaukana. Kaffi krús er með fjölbreyttan matseðil. Þar eru ferskir pasta- og salatréttir, alvöru hamborgara og samlokur, eldbakaðar pizzur (þær einu á suðurlandi) frumlegir fisk- og kjúklingaréttir, auk léttari rétta.Á Kaffi krús starfa um 30 manns og er óhætt að segja að það sé stærsti auður fyrirtækisins.