Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði.

Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði. Áskaffi góðgæti er eins og hjá ömmu... Áskaffi flutti frá Glaumbæ og er nú staðsett á nýjum áfangastað í félagsheimilinu Héðinsminni í Skagafirði.

Verið velkomin í Héðinsminni í Skagafirði þar sem Áskaffi góðgæti býður matseðil fyrir hópa sem eru áhugasamir um að bragða heimilislegan mat og kaffiveitingar. Héðinsminni er við hringveginn (þjóðveg nr. 1) í Blönduhlíðinni, um 10 mín akstur frá Varmahlíð þegar ekið er austur um til Akureyrar. Hádegisverð þarf að panta með dags fyrirvara. Kvöldverð þarf að panta með fimm daga fyrirvara. Lágmarksf

jöldi í hóp er sex manns. Um tveggja áratuga skeið rak undirrituð kaffistofuna Áskaffi í Áshúsinu á lóð Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ. Þar er rekin kaffistofa af safninu sem heitir ekki Áskaffi svo því sé komið á framfæri því ég á heitið Áskaffi en bauð Sveitarfélaginu Skagafirði að kaupa fyrirtækið af mér til að nota áfram á staðnum en þau höfðu ekki áhuga á því og þess vegna er Áskaffi staðsett í Héðinsminni í Blönduhlíðinni í dag.

Ég hlakka til að taka á móti ykkur á nýjum áfangastað þar sem ég mun áfram leggja áherslu á að bjóða Áskaffi góðgæti ásamt öðrum spennandi matvælum.

Ýmsar nýjungar verða á boðstólum og um að gera að heyra í mér ef þið hafið áhuga að koma með hópinn ykkar í hádegismat, miðdagskaffi eða kvöldmat. Veisluþjónusta í boði ef óskað er eftir því með útleigu á Héðinsminni.

Áskaffi góðgæti er þátttakandi í Matarkistu Skagafjarðar og félagi Smáframleiðenda matvæla á Íslandi og mun setja upp matarhandverks viðburði í Héðinsminni með áherslu að vinna með hráefni úr héraði. Verið hjartanlega velkomin í Blönduhlíðina. Nánari upplýsingar eru á www.askaffi.is

Bestu kveðjur,
A. Herdís Sigurðardóttir

Skagfirski kammerkórinn verður með tónleika á sumardaginn fyrsta í Héðinsminni kl. 20Verið velkomin.
14/04/2026

Skagfirski kammerkórinn verður með tónleika á sumardaginn fyrsta í Héðinsminni kl. 20
Verið velkomin.

Hér er nýr vefur www.askaffi.is sem kynnir áhugaverðar dagsferðir í Skagafirði ma. í samstarfi við www.crisscross.is Og ...
11/03/2026

Hér er nýr vefur www.askaffi.is sem kynnir áhugaverðar dagsferðir í Skagafirði ma. í samstarfi við www.crisscross.is Og fleira væntanlegt á næstu vikum, fylgist með.

„Það er bragð af sögunni í Skagafirði! 🌾☕️

Webdew hefur unnið náið með Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði. að nýjum vef sem styður við spennandi vöruþróun staðarins. Áskaffi í samvinnu við Crisscross matarferðir býður Matarslóðir Skagafjarðar, þar sem boðið er upp á dagsferðir með einstöku smakki á staðbundnum kræsingum.

Nýi vefurinn var hannaður til að miðla þessari upplifun á skýran og lystugan hátt. Viltu smakka á Eftirlæti Ásbirninga eða fá þér Dalalífs dúett?

Markmið okkar var að búa til stafræna glugga sem sýnir hvernig Áskaffi er að þróa vöruframboð og þjónustu til að mæta kröfum nútímans, með því að rækta tengslin við rætur sínar í Skagafirðinum.

Kíktu á nýja vefinn og láttu þig hlakka til næstu ferðar um Matarslóðirnar:
👉 https://webdew.is/portfolio/askaffi-skagafirdi/


Komið þið sæl.Heimasíðan www.askaffi.is hefur verið þýdd á ensku fyrir áhugasama.
02/03/2026

Komið þið sæl.
Heimasíðan www.askaffi.is hefur verið þýdd á ensku fyrir áhugasama.

Áskaffi, eins og hjá ömmu. Þjónusta við hópa í félagsheimilinu Héðinsminni. Ferðir um Matarslóðir Skagafjarðar. Góðgæti til sölu. Auður Herdís Sigurðardóttir 699 6102.

Ég hlakka til að kynna fyrir ykkur nýja heimasíðu www.askaffi.is og nýja þónustu sem við erum að fara af stað með í samv...
14/01/2026

Ég hlakka til að kynna fyrir ykkur nýja heimasíðu www.askaffi.is og nýja þónustu sem við erum að fara af stað með í samvinnu með Crisscross Sælkera- og söguferðir í Skagafirði.
Verið hjartanlega velkomin til okkar í spjall og nánari upplýsingar.

24/12/2025

Gleðilega hátíð og farsælt nýtt ár kæru gestir og fylgjendur. Hafið þökk fyrir heimsóknir og skemmtilegar samverustundir hér í Héðinsminni á árinu sem er að líða.
Jólakveðja,
Herdis

Nú er undirbúningur í fullum gangi fyrir jólahlaðborð sem verður á laugardaginn í Héðinsminni. Húsið opnar klukkan 18:30...
11/12/2025

Nú er undirbúningur í fullum gangi fyrir jólahlaðborð sem verður á laugardaginn í Héðinsminni. Húsið opnar klukkan 18:30 og veislan hefst kl. 19. Enn eru laus borð vegna afbókana svo ekki hika við að mæta.
Verð 11.500 kr. á manninn.
Rauðvín, hvítvín, bjór, gos og malt í kælinum.
Verið öll hjartanlega velkomin til okkar í jólahlaðborð Áskaffi góðgæti með matreiðslumanninum Brynjólfi Birki í aðalhlutverki að útbúa gúrme purusteik ásamt fleiru.

Tíminn líður trúðu mér..
26/11/2025

Tíminn líður trúðu mér..

Bændablaðið er með pu***na á púslinum. Sannarlega skemmtileg ferð og vel heppnuð í alla staði og mín ánægjan að taka þát...
09/11/2025

Bændablaðið er með pu***na á púslinum. Sannarlega skemmtileg ferð og vel heppnuð í alla staði og mín ánægjan að taka þátt.
Svo höldum við áfram og setjum á laggirnar nýjar og spennandi ferðir á nýju ári sem verða "Sögu- og sælkeraferðir í Skagafriði". Ef einhver hér hefur áhuga á samstarfi og vill taka þátt á einhvern hátt þá er velkomið að hafa samband við Herdísi í síma 6996102.

Skemmtileg umfjöllun hjá Bændablaðinu um matarferð í Skagafjörðinn á vegum Slow food samtakanna og Crisscross í október sl.
Takk öll sem tóku þátt og gerðu ferðina svona skemmtilega og fræðandi!! Slow Food á Íslandi Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði. Hofsstaðir - Country Hotel og fleiri og fleiri…

Komið þið sæl öll.Hér verður boðið uppá jólahlaðaborð föstudaginn 12. og laugardaginn 13. desember. Ath. aðeins fyrir hó...
05/11/2025

Komið þið sæl öll.
Hér verður boðið uppá jólahlaðaborð föstudaginn 12. og laugardaginn 13. desember.
Ath. aðeins fyrir hópa, 6 manns eða fleiri.
Borðapantanir nauðsynlegar fyrir 5. desember.
Hlakka til að heyra frá ykkur.

Það er spennandi ferð framundan þar sem gestir ljúka ferðalaginu hér í Héðinsminni og snæða miðdagsverð áður en haldið e...
23/10/2025

Það er spennandi ferð framundan þar sem gestir ljúka ferðalaginu hér í Héðinsminni og snæða miðdagsverð áður en haldið er heim.

Stjórn félags fagfólks um offitu stendur fyrir ráðstefnu í Salnum í Kópavogi í næstu viku þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um nýjustu þekkingu á offitu, ýmsa vinkla tengda forvörnum og meðferð við offitu. Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir við offi...

Takk fyrir komuna á kaffihlaðborð til mín í Héðinsminni um helgina.Nú verður stefnan sett á haustveislu í október og um ...
07/09/2025

Takk fyrir komuna á kaffihlaðborð til mín í Héðinsminni um helgina.
Nú verður stefnan sett á haustveislu í október og um að gera að fylgjast vel með því hvað okkur dettur í hug að gera og bjóða uppá.
Kær kveðja,
Herdís

Address

Héðinsminni
Saudarkrokr
561

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði.:

Share