Sá faldi fjársjóður sem íbúðin á þaki Gamla bíó hefur verið, opnar nú sem kaffihús, bar og stærðarinnar útisvæði með ótrúlegu útsýni yfir Vesturbæinn. Peter Petersen, bíóstjórinn sem stóð fyrir byggingu Gamla bíós árið 1926, lét einnig innrétta fyrir sig íbúð á efstu hæð hússins sem hann bjó í. Sú íbúð var á tímum óperunnar notuð fyrir saumastofur og æfingaherbergi en hefur nú verið breytt í kaffi
hús og bar með stærðarinnar útisvæði þar sem hægt er gleyma sér í útsýni yfir Vesturbæ Reykjavíkur. sérbruggaðan Petersen bjór. Í Petersen svítunni verður einnig léttur matseðill svo tilvalið er að koma fyrir viðburði í Gamla bíó eða skjótast í hádeginu og njóta veitinga í glæsilegu umhverfi.
Í Petersen svítunni eru tvö tuttugu manna fundaherbergi sem hægt er að leigja og einnig er hægt að leigja Svítuna í heild sinni fyrir veisluhöld.
Það er okkur sönn ánægja að opna þennan falda fjársjóð sem íbúðin hefur verið, fyrir Íslendingum og gestum þeirra. Sjón er sögu ríkari! Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband á [email protected]