07/10/2026
Takk fyrir okkur, mannauðsdagurinn! 🍋
Við áttum frábæran dag á mannauðsdeginum. Þar var fullt af fólki, mikið fjör og mikið gaman! Takk öll sem kíktuð við í spjall og smökkuðuð á veitingunum okkar. 💛 Hér eru nokkrar myndir frá deginum 📸
Vissir þú að Lemon býður líka upp á veisluþjónustu fyrir fyrirtæki? Við erum með veislubakka fyrir viðburði stóra sem smáa: samlokur, smáborgara, sæta bita, ostabakka og ferska ávexti. Bakkarnir henta fullkomlega fyrir hádegið, fundinn, starfsmannaviðburðinn eða hvaða tilefni sem er.
Til að panta eða fá frekari upplýsingar sendu okkur tölvupóst á [email protected]
Meiri veisla. Meira næs. 🍋