14/10/2025
Takk fyrir RVK Bruggfélag 🫶🏼🫶🏼
Það var ljúfsár tilfinning hjá okkur í dag, - að afhenda síðasta RVK bjórkútinn á BrewDog Reykjavík sem loka því miður í síðasta sinn á næstu dögum.
BrewDog hefur verið einn af okkar uppáhaldsviðskiptavinum allt frá upphafi, þau hafa stutt rækilega við bakið á íslenskum handverksbrugghúsum og fyrir það eiga þau stórt hrós og bestu þakkir skildar.
Það var auðvitað okkar besti Stebbi sem skutlaði kútnum niður á Hverfisgötu þar sem Elizabeth tók dansandi á móti honum. Við hvetjum fólk til að rúlla við á Brewdog þessa síðustu daga. Geggjaðir vængir og góðir dílar í gangi. 🍻🍻
Takk fyrir minningarnar BrewDog Reykjavík frá Team RVK.
💙💙💙