Múlakaffi

Call Directions Website Contact the business

Múlakaffi Veitingastaðurinn Múlakaffi er hjarta fyrirtækisins og er staðsettur í Hallarmúla. Þangað ko Múlakaffi er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1962.

Veitingastaðurinn Múlakaffi er hjarta fyrirtækisins en einnig er þar rekin veisluþjónusta fyrir hvers konar veisluhöld. Þá sér Múlakaffi um rekstur á veitingasölum og mötuneytum. Hægt er að skoða matseðil vikunnar á http://www.mulakaffi.is/veitingastadur/matsedill-vikunnar/ en á vefsíðunni má einnig finna myndir og matseðla fyrir veislu- og viðburðarþjónustu. Hafið samband í s. 553 7737 eða sendið skeyti á [email protected]

Við fögnuðum opnun Róót veitingastaðar nú á dögunum.Opnunin var stór áfangi fyrir okkur í Múlakaffi þar sem að staðurinn...
06/10/2026

Við fögnuðum opnun Róót veitingastaðar nú á dögunum.
Opnunin var stór áfangi fyrir okkur í Múlakaffi þar sem að staðurinn fór í umfangsmikla endurhönnun og endurbætur. Útkoman er vægast sagt glæsileg!

Opnunin var haldin sameiginlega með Heimum sem eiga og reka Höfðatorg þar sem Róót er. Það lá beinast við að bjóða fyrirtækjum í húsinu til veislu og sáum við að sjálfsögðu til þess að allir fengu dýrindis smakk af nýjum matseðli.

Hlökkum til að sjá ykkur í Róót! 🌳

Nýr veitingastaður, Róót, hefur opnað í glerskálanum í Höfðatorgsturninum í Katrínartúni 2 eftir umfangsmikla endurhönnun og endurbætur á rýminu. Heimar, sem eiga og reka fasteignina, hafa staðið að framkvæmdunum, en Róót er nýr veitingastaður á vegum Múlakaffis.

Við erum áfram í íslenska landsliðinu!Það er okkur hjá Múlakaffi mikill heiður að hafa endurnýjað samstarfssamning okkar...
30/09/2026

Við erum áfram í íslenska landsliðinu!

Það er okkur hjá Múlakaffi mikill heiður að hafa endurnýjað samstarfssamning okkar við KSÍ til ársloka 2028.

Frá árinu 1962 höfum við lagt metnað okkar í góðan mat, trausta þjónustu og íslenska gestrisni. Við erum því afar stolt af því að fá áfram að leggja okkar af mörkum þegar þjóðin sameinast um landsliðin okkar.

Áfram Ísland!

https://www.ksi.is/um-ksi/frettir/um-ksi/ksi-og-mulakaffi-framlengja-farsaelt-samstarf-til-arsins-2028/

Erum stolt af því að hafa fengið Kjartan til liðs við okkur og einstaklega spennt fyrir framhaldinu!Hér er hann í skemmt...
15/07/2026

Erum stolt af því að hafa fengið Kjartan til liðs við okkur og einstaklega spennt fyrir framhaldinu!

Hér er hann í skemmtilegu spjalli um nýtt hlutverk en ásamt því deilir hann með ykkur dýrindis uppskrift af Karamellu-sesamdraumi, sem allir þurfa að prufa.

Kjartan Gíslason, matreiðslumeistari og einn af stofnendum Omnom, hefur óbilandi áhuga á súkkulaðigerð og eftirréttum, en eftir að súkkulaðifyrirtækið var selt til Góu hefur hann snúið sér aftur af fullum krafti að matargerðinni.

Bráðum.. 🤫
13/07/2026

Bráðum.. 🤫

Ísak Aron okkar deilir með ykkur dýrindis grillréttum í fyrsta þætti af Grillað með Sjöfn Þórðar.Lærðu að grilla undir l...
30/06/2026

Ísak Aron okkar deilir með ykkur dýrindis grillréttum í fyrsta þætti af Grillað með Sjöfn Þórðar.

Lærðu að grilla undir leiðsögn fyrirliða íslenska kokkalandsliðsins og Kokki ársins 2026 👌🏻

Grillsumarið er hafið og ilmurinn af grilluðum kræsingum er í loftinu. Fyrsti þátturinn af Grillað með Sjöfn Þórðar er kominn í loftið en fyrsti gestur þáttarins er Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og Kokkur ársins 2026.

Hvernig hljómar Kaffi- og döðlukaka með appelsínukremi í veisluna þína? Handgert af Kjartani Gísla - stofnanda Omnom ✨Nú...
26/06/2026

Hvernig hljómar Kaffi- og döðlukaka með appelsínukremi í veisluna þína?

Handgert af Kjartani Gísla - stofnanda Omnom ✨

Nú getur þú sett saman veisluna þína á einfaldan hátt í nýju netversluninni okkar - kynntu þér málið á mulakaffi.is

Láttu okkur sjá um veitingarnar fyrir útskriftarveisluna þína ✨Þú getur pantað eftir matseðlum eða staka rétti í nýju ve...
10/06/2026

Láttu okkur sjá um veitingarnar fyrir útskriftarveisluna þína ✨

Þú getur pantað eftir matseðlum eða staka rétti í nýju vefversluninni okkar - kynntu þér málið á mulakaffi.is

Við erum með frábært úrval af veisluréttum fyrir útskriftina.Kynntu þér úrvalið inn á mulakaffi.is
17/05/2026

Við erum með frábært úrval af veisluréttum fyrir útskriftina.

Kynntu þér úrvalið inn á mulakaffi.is

27/04/2026

Íþróttasalur verður að veislusal með dýrindis borðhaldi frá okkur. Skyggnumst á bakvið tjöldin í veislu fyrr í mánuðinum.

Unnin í samstarfi við 👏🏻

Stórar fréttir hjá Múlakaffi! 💥💥Við erum ótrúlega spennt að bjóða þá Kjartan Gíslason og Sigurð Ívar Sigurðsson velkomna...
21/04/2026

Stórar fréttir hjá Múlakaffi! 💥💥
Við erum ótrúlega spennt að bjóða þá Kjartan Gíslason og Sigurð Ívar Sigurðsson velkomna í teymið okkar ✨✨
Kjartan, sem margir þekkja úr Omnom, kemur með einstaka reynslu og ástríðu fyrir nýsköpun í matargerð. Siggi er einn af okkar færustu matreiðslumönnum og mun koma sterkur inn með dýrmæta reynslu og sköpunarkraft. Framundan eru spennandi tímar hjá Múlakaffi og við hlökkum til að skapa enn fleiri ógleymanlegar veisluupplifanir.

Múlakaffi hefur ráðið matreiðslumeistarana Kjartan Gíslason og Sigurð Ívar Sigurðsson.

Address

Hallarmúla 1
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 07:30 - 20:00
Tuesday 07:30 - 14:00
Wednesday 07:30 - 20:00
Thursday 07:30 - 20:00
Friday 07:30 - 20:00

Telephone

+3545537737

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Múlakaffi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Múlakaffi:

Shortcuts

Sponsored

Share

Category