Flatey Pizza

Flatey Pizza Stuttur eldunartími, einföld gæðahráefni og vandað handbragð einkenna pítsurnar á Flatey. Engin eldun, ekkert krydd og engin aukaefni.
(402)

FLATEY PIZZA

Stuttur eldunartími, einföld gæðahráefni og vandað handbragð einkenna pítsurnar á Flatey. Útkoman eru náttúrulega bragðgóðar og heilnæmar pítsur. Flatey sækir í hefðir Napólí, en þar ræður einfaldleikinn ríkjum í hráefnum og eldunaraðferðum. Í héruðunum í grennd við Napólí hefur pítsuhefðin varðveist nánast óbreytt frá því að fyrsta pítsan leit dagsins ljós á 18. öld. Margherita er h

in klassíska napólíska pítsa og í algjöru uppáhaldi hjá okkur á Flatey. Sagan segir að margheritan hafi fyrst skotið upp kollinum árið 1889 þegar bakarinn Raffaele Esposito skreytti pítsu í fánalitum Ítalíu til heiðurs drottningunni Margherita af Savoja. Tómatarnir gáfu henni rauðan lit, mozzarella osturinn hvítan og basilíkan grænan. DEIGIÐ

Deigið á Flatey inniheldur einungis lífrænt hveiti, vatn, salt, súrdeig og örlítið ger. Þau eru látin þroskast í að minnsta kosti sólarhring sem gerir það að verkum að botnarnir verða bragðmiklir og léttir í maga. Pítsurnar bakast á u.þ.b. 60 sekúndum við um 500 gráðu hita, sem skilar loftmiklum kanti sem er stökkur að utan en silkimjúkur að innan. TÓMATARNIR

Flatey kaupir tómata beint frá bónda, nánar tiltekið Rega fjölskyldunni sem hefur frá árinu 1987 helgað sig ræktun svokallaðra San Marzano tómata. Á hverju hausti eru tómatarnir tíndir á hárréttu þroskastigi og settir beint í dós á búgarði fjölskyldunnar við rætur eldfjallsins Vésúvíusar, sunnan við Napólí. Tómatarnir eru í laginu eins og plómur, sérstaklega safaríkir og bragðmiklir. Því þarf engu við að bæta, ef frá er talið dálítið salt.

Það er eitthvað við eldheita Flatey undir berum himni 🍕Takk fyrir okkur Bergmál, Þingvellir og allar sumarkonurnar og su...
30/06/2026

Það er eitthvað við eldheita Flatey undir berum himni 🍕Takk fyrir okkur Bergmál, Þingvellir og allar sumarkonurnar og sumarkarlarnir 💚

Pizza mánaðarins er Padrino Extra: Padrino í sparifötunum, uppfærð útgáfa af einni okkar vinsælustu pizzu.Spæsí, sæt og ...
02/06/2026

Pizza mánaðarins er Padrino Extra: Padrino í sparifötunum, uppfærð útgáfa af einni okkar vinsælustu pizzu.

Spæsí, sæt og rjómakennd með stracciatella, hunangi, pikkluðum chili og rifinni sítrónu. Risa partí fyrir bragðlaukana, sagði einhver úr smakknefndinni.

PADRINO EXTRA 🌶️🍯

San Marzano tómatar
Pepperoni
Pikklaður chili
Hunang
Stracciatella-burrata
Rifinn sítrónubörkur

Kæru vinir, frá árinu 2020 hefur mini margheritan fest sig í sessi á veitingastöðunum okkar á Granda og Garðatorgi. Þess...
12/04/2026

Kæru vinir, frá árinu 2020 hefur mini margheritan fest sig í sessi á veitingastöðunum okkar á Granda og Garðatorgi. Þessi litla útgáfa af margheritunni er hugsuð fyrir okkar yngstu unnendur, margir hafa haft orð á því hvað þau verða hissa þegar að þau horfa á pizzuna hverfa ofan í litla svanga maga. 😋

Mini margheritan var eins og svo margt annað leikbreytir hjá okkur á Flatey, því viljum við fagna í dag með ykkur! Við ætlum að bjóðu upp á Mini pizzur á hálfvirði út daginn í dag 🙏 Að vana eru þær einungis í boði fyrir 12 ára og yngri 🫶

Sjáumst á Granda og Garðatorgi í dag 🙌

Flatey sækir í pítsuhefðina sem kennd er við Napólí. Við gerum súrdeig á staðnum og látum það þroskast í sólarhring áður en við bökum pítsurnar við 500 gráðu hita. Fyrir vikið verða botnarnir náttúrulega bragðmiklir og léttir í maga og áleggin sérstaklega fersk og s...

Sumir panta sér Margheritu og vatnsglas, aðrir Parma og Prosecco. Við dæmum engan.
08/04/2026

Sumir panta sér Margheritu og vatnsglas, aðrir Parma og Prosecco. Við dæmum engan.

Kæru vinir, við opnum aðeins seinna í dag vegna veðurs, nema í Kringlunni þar sem okkar allra besti Gabriel bakari er mæ...
26/03/2026

Kæru vinir, við opnum aðeins seinna í dag vegna veðurs, nema í Kringlunni þar sem okkar allra besti Gabriel bakari er mættur. Stefnum á að opna á öðrum stöðum um eitt leytið eða þegar að veður lægir. Skil eftir uppáhalds myndina okkar af honum Mirko í von um að hún hlýi ykkur um hjartarætur 🫶

Sjáumst á Flatey 💚

Kæru vinir, í ljósi þess að vorið ætlar að láta bíða eftir sér ætlum við að bjóða öllum gestum á Granda og Garðatorgi up...
24/03/2026

Kæru vinir, í ljósi þess að vorið ætlar að láta bíða eftir sér ætlum við að bjóða öllum gestum á Granda og Garðatorgi upp á Nutella pizzu í kaupbæti í kvöld ef það eru pantaðar tvær pizzur á borðið 😇 Gildir þriðjudagskvöldið 24.03.26 🫶

Tilvalið tilefni til að brjóta upp hið daglega amstur með smá mini-lúxus og eftirrétt 😋

Hlökkum til að taka móti ykkur, sjáumst á Flatey 💚

Flatey sækir í pítsuhefðina sem kennd er við Napólí. Við gerum súrdeig á staðnum og látum það þroskast í sólarhring áður en við bökum pítsurnar við 500 gráðu hita. Fyrir vikið verða botnarnir náttúrulega bragðmiklir og léttir í maga og áleggin sérstaklega fersk og s...

07/03/2026

Margheritan okkar inniheldur átta inniheldsefni í heildina, samanborið við allt að fimmtíu í sumum hefðbundnum skyndibitapítsum. Alvöru deig + San Marzano tómatar + fior di latte = náttúrulega góð pizza 😋🌱

Þetta þarf ekki að vera flókið en þetta verður að vera gott 💚

Pítsa mánaðarins í janúar er græn, væn og einstaklega góð. Bragðmikið grænmeti leikur saman í fallegri heild - kjötlaus ...
05/01/2026

Pítsa mánaðarins í janúar er græn, væn og einstaklega góð. Bragðmikið grænmeti leikur saman í fallegri heild - kjötlaus bragðupplifun sem stendur algjörlega fyrir sínu. Að sjálfsögðu fæst hún líka með vegan mozzarella fyrir hörðustu grænkera 🌱

🍅 San Marzano tómatar
🧀 Mozzarella (eða 🌱 vegan mozzarella)
🧅 Rauðlaukur
🫒 Ólífur
🧄 Hvítlaukur
🌴 Döðlur
🫒 Ólífuolía
🍃 Fersk basilíka

Gleðilega hátíð kæru vinir. Við förum nú í jólafrí en komum sterk tilbaka strax á jóladag og eftir það er opið á einhver...
24/12/2025

Gleðilega hátíð kæru vinir. Við förum nú í jólafrí en komum sterk tilbaka strax á jóladag og eftir það er opið á einhverjum Flatey stað alla daga 🍕

Grandagarður - Lokað á aðfangadag en opið jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag og allt þar á milli.

Garðabær - Lokað á aðfangadag og jóladag, opið annan í jólum og dagana þar á eftir. Lokað á gamlársdag en opið nýársdag 🎆

Hlemmur og Selfoss: Lokað 24. og 25. en opið annan í jólum 26. desember. Opið dagana þar á eftir en lokað á gamlársdag og nýársdag.

Kringlan: Lokað 24.-26 desember. Opið 27.-30 desember. Lokað á gamlársdag og nýársdag.

Sjáumst á Flatey um jólin 💚

Address

Grandagarður 11
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 11:30 - 21:00
Tuesday 11:30 - 21:00
Wednesday 11:30 - 21:00
Thursday 11:30 - 21:00
Friday 11:30 - 22:00
Saturday 11:30 - 22:00
Sunday 11:30 - 21:00

Telephone

+3545882666

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flatey Pizza posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Flatey Pizza:

Shortcuts

Share

Category