11/12/2025
MATARKJALLARINN – klassík að venju 🎼
Staðurinn þykir einn sá besti í bænum ⭐, eins og við tvímenningarnir sannreyndum. Við völdum Upplifðu jólin, sem er fjögurra rétta matseðill – veisla (kr. 13.900). Einnig er í boði Leyndarmál Matarkjallarans, s*x rétta veisla (kr. 15.500).
Fyrst á dagskrá voru tveir óáfengir jólakokteilar 🍸, báðir frískandi og auðvelt að mæla með þeim.
Veislan byrjaði með hægelduðum þorski 🐟, ljómandi góðum – ekki síst vegna góðs meðlætis. Hreindýra carpaccio stóð fyrir sínu eins og undanfarin ár 🦌, en aðalskrifarinn - “leikarinn” Hákon – bað um svartan pipar eins og vanalega, sem lyftir réttinum aðeins upp og mætti bjóða sjálfkrafa.
Á þessu stigi fengu matgæðingarnir einnig að prófa einn rétt úr s*x rétta veislunni: skoska rjúpu. Hún var ágæt, en stóðst ekki samanburð við þá íslensku sem er þó illfáanleg.
Aðalrétturinn, lambafile, var næstur á svið 🍽️, borinn fram undir ljúfum tónum píanóleikara staðarins. Frán augu aðalskrifarans sáu strax að í þessum ríkulega skammti væri kominn kvöldverðurinn á morgun – og það fyrir tvo! 🙂.
Í eftirrétt var boðið upp á möndluköku með jarðaberja- og kampavíns krapís (sorbet) 🍓✨. Meðleikarinn hélt varla vatni yfir þeim rétti – allt tónaði svo vel saman og ekki of sætt, eins og stundum vill verða.
Það var jólalegt 🎅 á staðnum og þjónusta ungra þjóna var, að venju, mjög natin og vinaleg, sem fullkomnaði kvöldið. Samsetning gesta á vel setnum staðnum var líka skemmtileg – áhugaverð blanda af Íslendingum og erlendum gestum - á öllum aldri, sem bjó til skemmtilega stemmingu💕.
Staðurinn er listaður á www.jolamatsedlar.is ásamt fjölda annarra staða.