29/11/2024
Það er með sorg & trega sem við tilkynnum að Valkyrjunni verður lokað frá og með 1. desember 2024. Laugardagurinn 30. nóvember er því algjör partýdagur hjá okkur. Enn eru nokkur pláss laus í brönsinn og það þarf að bóka borð á [email protected] Svo verður mega kosningapartý, sérstaklega ætlað fyrir anarkista, þeim sem ætla ekki að kjósa, er skítsama, nenna ekki á kjörstað og alla hina. Sýndar verða dystópískar myndir svo fólk sjái hvaða framtíð blasir við okkur. Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn og þökkum fyrir samveruna síðustu 3 árin. Ást á ykkur öll