28/07/2025
Hjá Höllu tekur við rekstri Loksins bar í haust.
Það eru spennandi breytingar í vændum á Keflavíkurflugvelli, Hjá Höllu mun í haust taka yfir rekstri Loksins bar.
Litlar breytingar verða á vöruvali og þjónustu til að byrja með en í vetur má gera ráð fyrir auknu samspili milli staðanna, sem í dag starfa hlið við hlið við C hliðin. Markmiðið er að efla upplifun ferðamanna sem leið eiga um flugstöðina hvort sem fólk sækist eftir góðum drykk, pizzu eða léttu snarl fyrir brottför.
Við hlökkum til að bjóða gestum áfram velkomna til Hjá Höllu og á Loksins bar 🥂
Lagardère Travel Retail mun hætta starfsemi sinni á Keflavíkurflugvelli fyrr en upphaflega var áætlað og nýjir aðilar taka við rekstrinum.