Microbar Kópavogur

Microbar Kópavogur Brewpub within Gæðingur Brewery located in the heart of Kópavogur. Send us a line for a brewery tour

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8🗓️ 29. maí, kl 20:00Eru ekki allir sexý?Það er komið að næsta Pub Quiz-i og við förum l...
26/05/2026

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8
🗓️ 29. maí, kl 20:00

Eru ekki allir sexý?

Það er komið að næsta Pub Quiz-i og við förum lóðbeint í kynlífið.

Kynlíf er órjúfanlegur partur af tilverunni. Þannig urðum við öll til og þannig styttum við flest okkur stundir reglulega.

Það er því ekki skrítið að kynlíf hafi verið efniviður í mörgum kvikmyndum, lögum og almennum poppkúltúr.

Það verður skoðað ásamt alls konar kynferðislegum staðreyndum, kynlífi í dýraríkinu og öllu öðru sem okkur dettur í hug.

Kalli Páls sér um spurningarnar sem er vel við hæfi þar sem hann lenti í 68.677 sæti í kynþokkafyllsta karlmanni ársins í fyrra.

📍 Microbar, Nýbýlavegi 8🗓️ 16. maí, kl 20:00Það er komið sumar! Kannski ekki alltaf bongó en sú gula er farinn að láta s...
11/05/2026

📍 Microbar, Nýbýlavegi 8
🗓️ 16. maí, kl 20:00

Það er komið sumar!

Kannski ekki alltaf bongó en sú gula er farinn að láta sjá sig, geitungar farnir að flögra og fólk víða farið að sjá sumarfrí í hillingum.

Við ætlum því að henda í sumarlegt Pub Quiz. Sumarið hefur augljóslega birst í tónlist, kvikmyndum, bókmenntum, málverkum og almennri markaðssetningu.
Allt þetta kemur til greina í þessu kvissi.

Kalli Páls er tilbúinn í sumarið og mætir með spurningarnar, hljóðbrotin og myndagáturnar.

Sumarbjór Gæðings er líka kominn og alls konar fínt í boði!

11/05/2026

Bjórbúðin er opin alla daga! Líka á mánudögum 😱

Opnunartímar bjór búðarinnar eru:
Mánudagar - þriðjudagar: 09:00-22:00
Fimmtudagar - föstudagar: 09:00-23:00
Laugardagar: 14:00-23:00
Sunnudagar: 14:00-22:00

📍 Nýbýlavegur 8, 200 Kópavogur

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8🗓️ 9.mai kl 20:00Súrpungar og Pez, StD og Ves? Þetta gæti sko allt tengst í þeim spurni...
05/05/2026

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8
🗓️ 9.mai kl 20:00

Súrpungar og Pez, StD og Ves? Þetta gæti sko allt tengst í þeim spurningaleik sem framinn verður á Micro bar í Kópavogi laugardaginn 9. maí. Þemað verður fléttað fimlega um mat og drykk og kryddað svo vel með góðu knippi af kóríander, framandi humlum og örlítið súrsað í ofanálag. Álag!

Spurningasúpa dagsins verður framreidd lystilega af tveimur misliprum matsveinum og verðlaunin koma svo fljótandi í boði Gæðings fyrir getspaka matgæðinga. Sultaður Sultartangi eða kræklóttur krummafótur? Nei, þetta eru ekki réttir af matseðli kvöldsins því hér verður ekkert kokkað upp af vitlíkinu, ekki frekar en bjórlíki. Komdu og pæklaðu þig með okkur í einn ölsen ölsen.

📍 Microbar, Nýbýlavegur 8, Kópavogur🗓️ 2.maí kl 20:00Í seinustu viku byrjaði Kalli Páls ferðalag sitt um áratuginu í tón...
28/04/2026

📍 Microbar, Nýbýlavegur 8, Kópavogur
🗓️ 2.maí kl 20:00

Í seinustu viku byrjaði Kalli Páls ferðalag sitt um áratuginu í tónum og kvikmyndum.
Þá voru það 80's kvikmyndirnar og núna er það 80's tónlistin!

Hver áratugur hefur sitt fram að færa í tónlistarstefnum en 80's var náttúrulega besti fílingurinn!

Tískan var ógeðslega töff og ógeðslega skrítin og þarna heyrðum við fyrst í mörgum sem áttu eftir að móta næstu áratugi.

Madonna, Bon Jovi, Bubbi, Wham, Duran Duran, Cindy Lauper, listinn er endalaus!

21/04/2026

Skál lite fæst í bjórbúðinni! Hún er opin virka daga frá 11-23 (mánudaga frá 11-16), á laugardögum frá 14-23 og sunnudögum frá 14-22.

Flunkunýr NEIPA, New Hampshire, fer í sölu á föstudaginn 😎 6% juicy NEIPA bjór með sabro og talus humlum 🤤
15/04/2026

Flunkunýr NEIPA, New Hampshire, fer í sölu á föstudaginn 😎 6% juicy NEIPA bjór með sabro og talus humlum 🤤

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8🗓️ 17.apríl kl 16:30(English below) Annar bjórinn úr tilraunaeldhúsi Gæðings fer á kran...
15/04/2026

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8
🗓️ 17.apríl kl 16:30

(English below) Annar bjórinn úr tilraunaeldhúsi Gæðings fer á krana á Microbar Kópavogi. Að þessu sinni er það 7% weizenbock sem kallast Tókaflón.

Weizenbock er sterkur hveitibjór með mjúka fyllingu og hlýjum ávaxta- og kryddtónum, oft með keim af banana og negul.

Þú vilt ekki missa af þessum bjór! Aðeins 20 lítrar voru bruggaðir af Tókaflón og því um afar takmarkað magn að ræða.

Þess fyrir utan kynnum við flunkunýjan NEIPA bjór - New Hampshire, 6% gúmmelaði með sabro talus humlum.

//

The second release from Gæðingur Beer Labs is going on tap at Microbar Kópavogur. This time it’s a 7% Weizenbock called Tókaflón.

Weizenbock is a strong wheat beer with a smooth body and warm fruity and spicy notes, often showing hints of banana and clove.

You won’t want to miss this one — only 20 litres of Tókaflón were brewed, making this a very limited release.

Alongside it, we’re also introducing a brand-new NEIPA — New Hampshire, a 6% juicy delight brewed with Sabro and Talus hops.

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8🗓️ 18 apríl, kl 20:00Rokk quiz á Micro Bar 18. apríl!Óskar Logi snýr aftur með rokk qui...
15/04/2026

📍 Microbar Kópavogi, Nýbýlavegi 8
🗓️ 18 apríl, kl 20:00

Rokk quiz á Micro Bar 18. apríl!

Óskar Logi snýr aftur með rokk quiz laugardaginn 18. apríl. Viðfangsefnið er rokk tónlist frá 50's-2000's, með áherslu á sjöunda og áttunda áratugnum.

Mikið fjör framundan!

Besta deild karla hefst í dag! 😱 Í tilefni þess verður stór Skál lite á aðeins 990kr! Sjáumst kl 19:00 í kvöld!
10/04/2026

Besta deild karla hefst í dag! 😱 Í tilefni þess verður stór Skál lite á aðeins 990kr! Sjáumst kl 19:00 í kvöld!

Address

Nýbýlavegur 8
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 16:00 - 22:00
Tuesday 16:00 - 22:00
Wednesday 16:00 - 00:00
Thursday 16:00 - 00:00
Friday 16:00 - 01:00
Saturday 14:00 - 01:00
Sunday 14:00 - 22:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Microbar Kópavogur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Microbar Kópavogur:

Share

Category