01/03/2019
Vorum að klára að tengja þetta eldhús. Með flottari tækjum sem við höfum séð.
Stærsta og þyngsta eldavél landsins svo vitað sé var flutt með krana inn í kjallara Laugavegar 77 þar sem Landsbankinn var áður til húsa. Þar er nú verið að leggja lokahönd á nýjan veitingastað Eiriksson Brasserie sem mun opna á næstu vikum.