Skemman kaffihús

Skemman kaffihús Lítið fjölskyldurekið kaffihús staðsett í Skemmunni á Hvanneyri

Í dag lokum við Skemmunni í sumar og þökkum kærlega fyrir okkur. Við lærðum heilmikið af þessu ævintýri og það sem stend...
09/08/2026

Í dag lokum við Skemmunni í sumar og þökkum kærlega fyrir okkur. Við lærðum heilmikið af þessu ævintýri og það sem stendur upp úr er hvað þið voruð ánægð með það sem við höfðum upp á að bjóða. Heimagerðar veitingar frá hugarheimi Kristjáns, búnar til með alúð. Við förum í vetrardvala, eins og múmínálfarnir, þegar Snúlli og Eysteinn læsa í dag klukkan 17:00. Gleðilegan sólmyrkva 😎

Kæru kaffihùsagestir. Þessi vika er okkar síðasta í sumar svo endilega kíkið við fyrir lokun. Hvanneyrarahátíðin er 8. á...
05/08/2026

Kæru kaffihùsagestir. Þessi vika er okkar síðasta í sumar svo endilega kíkið við fyrir lokun. Hvanneyrarahátíðin er 8. ágúst en þá verður ekki hefðbundinn matseðill og því er sunnudagurinn næsti síðasti dagurinn til að fá sér belgíska vöfflu hannaða af okkur. Við erum afar þakklát öllum þeim sem komu og studdu okkur í þessu samfélagsverkefni og þá sérstaklega okkar elskulegu fastakúnnum 😁

31/07/2026
P.s. Þessi auglýsing var langt í frá gerð með gervigreind heldur með hæfileikum okkar í paint sem við lærðum á sem ungli...
30/07/2026

P.s. Þessi auglýsing var langt í frá gerð með gervigreind heldur með hæfileikum okkar í paint sem við lærðum á sem unglingar (vorum aldrei mjög góð í því forriti)

Við erum komin með nýjar litabækur í Skemmuna þökk sé Nakano vefverslun  eða japönsku búðinni eins og við köllum hana 😁
30/07/2026

Við erum komin með nýjar litabækur í Skemmuna þökk sé Nakano vefverslun eða japönsku búðinni eins og við köllum hana 😁

Duck confit vafflan er mætt á leynimatseðilinn fyrir okkar dyggustu fylgjendur. Leyniorðið er Andabær 😎
29/07/2026

Duck confit vafflan er mætt á leynimatseðilinn fyrir okkar dyggustu fylgjendur. Leyniorðið er Andabær 😎

28/07/2026

🇮🇸 🇬🇧
Hvað getur fólk gert á Hvanneyri?🤔 Nú það er opið alla daga hjá okkur á safninu milli kl. 11-17. Nýjasta sýningin opnaði fyrir rúmri viku - Stofa Sigga Skarp sem er ný viðbót við grunnsýninguna. Saga laxveiða í Borgarfirði er svo í kjallara safnsins og á fjósloftinu er sýningin Konur í landbúnaði.

Ullarselið er svo með vandaðar vörur úr ull, hornum og fleiru til sölu í afgreiðslu safnsins.

Svo er hægt að skella sér í frisbýgolf á einum flottasta velli landsins (eða svo segir sagan!). Eða að skoða Hvanneyri í stuttum eða lengri göngutúrum, stoppa í leiktækjum eða skoða náttúruna lengra út frá staðnum.

Alls ekki má gleyma Skemman kaffihús sem bjóða upp á nýbakaðar vöfflur og með'í. Hreppslaug er svo steinsnar frá þar sem hægt er að baða sig og njóta. 🙏

🇬🇧🇬🇧🇬🇧

What can you do in Hvanneyri? 🤔 Quite a lot, actually!
The museum is open every day from 11:00 AM to 5:00 PM. Our newest exhibition, Siggi Skarp's Corner, opened just over a week ago and is the latest addition to our main exhibition. Downstairs, you can explore the History of Salmon Fishing in Borgarfjörður, while upstairs you'll find the exhibition Women in Agriculture.

The Ullarselið shop, located in the museum reception, offers a carefully curated selection of high-quality products made from Icelandic wool, horns, and other local materials.

If you're looking for outdoor activities, why not try the disc golf course—said to be one of the finest in Iceland! You can also enjoy a short or longer walk around Hvanneyri, stop by the playground, or venture a little farther to experience the surrounding nature.

And don't forget Skemman Café, where you can treat yourself to freshly baked waffles and other delicious refreshments. Just nearby, you'll also find Hreppslaug, a charming local swimming pool where you can relax and unwind. 🙏

Sjá svo umfjöllun Skessuhorns frá opnun Stofu Sigga 👇
https://skessuhorn.is/verold/opnudu-syningu-tileinkada-sigga-skarp

26/07/2026

Kæru Há-degis Skemmendur!

Við náum ekki að vera með hefðbundinn hádegismat í næstu viku. Við verðum aftur á móti með fullt af súpu og fullt af brauði.

Kristján hefur svo eitthvað verið að hóta því að henda í Duck confit vöfflur og mögulega lemon curd vöffluna aftur.

Sveppasúpan er búin en það verður brakandi fersk súpa í vikunni, eða maukandi heit? nei ég bara segi svona.

Sjáumst í vikunni!

23/07/2026

Address

Skemman
Hvanneyri
311

Opening Hours

Tuesday 12:00 - 17:00
Wednesday 12:00 - 17:00
Thursday 12:00 - 17:00
Friday 12:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skemman kaffihús posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category