01/06/2026
Kæru Sveitungar, fastagestir, velunnarar og aðrir sem litið hafa við á SæsaBar undanfarin ár.
SæsaBar hefur lokað dyrum sínum í síðasta skiptið og hættum við rekstri í núverandi mynd í fallega rauða húsinu okkar. Við viljum af heilum hug þakka fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman og þökkum innilega fyrir viðskiptin.
Þá viljum við nota tækifærið og segja ykkur frá að innan skamms opnar nýr staður að Grund á Flúðum. Grund er fyrir löngu orðin stofnun í Hrunamannahreppi og hlökkum við til að bjóða alla velkomna þangað í kalda og heita drykki, kökur og sitthvað fleira. Við erum að móta rekstrarformið en hugur okkar stendur til að bjóða upp á matseðil í framtíðinni. Fyrst og fremst verða öll velkomin í notalegt og skemmtilegt andrúmsloft. Fylgist endilega með.
Takk fyrir og sjáumst á nýjum stað. Aðstandendur SæsaBars ❤️