04/05/2021
🌞 Gjafaleikur og maí tilboð 🌞
Við ætlum að gefa heppnum þátttakanda gistingu í kota svítu ásamt morgunverði / bröns. Þið getið tekið þátt með því að merkja vin í kommenti við þessa færslu. Þið megið merkja eins marga vini og þið viljið, það eykur vinningslíkurnar.
Komdu í litlu sveitina okkar á Hróarslæk. Slakaðu á í heita pottinum og gufubaðinu, gríptu í spil og góðann drykk í setustofunni, láttu stjana við þig á veitingastaðnum, taktu göngutúr með ánni, hittu dýrin, skemmtu þér í fótbolta eða frisbí golfi, aðeins nokkrir kílómetrar í golfvelli, stangveiði, hestaleigur, snjósleðaferðir, jöklaferðir, fjallgönguleiðir, skoðaðu gullna hringinn, suðurströndina, Þórsmörk, Landmannalaugar o.fl. Frábært fyrir fjölskyldur, pör og hópa af öllum gerðum en hótelið tekur allt að 70 gesti.
Maí tilboð* :
Tveggja manna herbergi:
1 nótt 13.900 - 2 nætur 24.900 - 3 nætur 34.900
Þriggja manna herbergi:
1 nótt 19.900 - 2 nætur 34.900 - 3 nætur 49.900
Fjögurra manna herbergi:
1 nótt 24.900 - 2 nætur 43.900 - 3 nætur 65.900
Gul hús / Kota svíta fyrir tvo:
1 nótt 19.900 - 2 nætur 34.900 - 3 nætur 49.900
Gul hús / Kota svíta fyrir þrjá til fjóra:
1 nótt 24.900 - 2 nætur 43.900 - 3 nætur 65.900
Gul hús / Kota svíta fyrir fimm til s*x:
1 nótt 29.900 - 2 nætur 52.900 - 3 nætur 76.900
*Gildir aðeins fyrir dagsetningar í maí. Verð er án morgunverðar, morgunverður / bröns selt sér. Athugið að tilboðið er ekki á bókunarsíðum eða heimasíðu, panta skal með beinum skilaboðum, tölvupósti [email protected] eða í síma 466-3930