Veislulist

Veislulist Hjá okkur færðu frábæran hádegismat fyrir fyrirtæki

Eining erum við með flotta veisluþjónustu

Veislulist -Skútan fagnar 50 ára afmæli í dag þann 28.júní.Frá stofnun fyrirtækisins árið 1975 hefur Veislulist þjónusta...
28/06/2025

Veislulist -Skútan fagnar 50 ára afmæli í dag þann 28.júní.

Frá stofnun fyrirtækisins árið 1975 hefur Veislulist þjónustað ótal veislur, viðburði, mötuneyti og samkomur af fagmennsku og alúð.

Í tilefni þessa merka áfanga vill fyrirtækið koma á framfæri innilegu þakklæti til allra viðskiptavina, samstarfsaðila og starfsfólks sem gert hefur þessa vegferð mögulega.

Í gegnum áratugina hefur Veislulist aðlagað sig breyttum tímum, tekið upp nýjar matreiðsluaðferðir og svarað kalli um sjálfbærni og fjölbreyttar matarþarfir. Fyrirtækið heldur þó fast í rætur sínar sem fjölskyldufyrirtæki, þar sem persónuleg tengsl við viðskiptavini skipta höfuðmáli.

Frá upphafi hefur fyrirtækið verið í eigu og rekstri sömu fjölskyldu. Birgir Pálsson matreiðslumeistari og Eygló Sigurliðadóttir stofnuðu fyrirtækið1975 og í dag sinna synir þeirra um reksturinn, Birgir Arnar, Sigurpáll Örn og Ómar Már, en einnig hafa makar, barnabörn og fólk í okkar nærumhverfi tekið virkan þátt í starfseminni á ýmsum tímum eða gera enn og viljum við þakka þeim öllum kærlega fyrir stuðninginn í gegnum árin.

Veislulist – Skútan var fyrst til húsa við Strandgötu í Hafnarfirði, þar sem Bókasafn Hafnarfjarðar er nú. Þar starfræktum við eitt vinsælasta skemmtihús bæjarins á árunum 1975–1982. Á staðnum var rekin veitingaþjónusta, kaffitería, veislueldhús og skemmtistaður. Fyrirtækið hét upphaflega Skiphóll, en síðar skiptist starfsemin í tvennt: Snekkjan, sem var skemmtistaðurinn, og Skútan, sem sá um veislu- og kaffiteríuþjónustu.

Árið 1982 var ákveðið að breyta rekstrinum enn frekar. Snekkjan var seld, en Skútan fluttist í Dalshraun. Þar var veisluþjónusta starfrækt áfram ásamt veislusal, og aukinn kraftur settur í matarbakkaþjónustu fyrir fyrirtæki, þjónustu sem þegar hafði verið sett á laggirnar í Strandgötunni. Í dag útvegum við fjölda fyrirtækja, heimaþjónustu og mötuneyta heitan hádegismat alla virka daga.

Árið 1992 flutti fyrirtækið í eigið húsnæði að Hólshrauni 3 þar sem við erum enn þann dag í dag og rekum ennþá alhliða kröftuga veisluþjónustu og matarþjónustu.

Fjölmargir matreiðslumenn hafa lært fag sitt hjá Veislulist og margir þeirra náð langt, bæði með hæstu einkunn í faginu og sumir í landsliði matreiðslumanna. Við erum stolt af þeim og þakklát fyrir að hafa átt hlutdeild í þeirra vegferð.

Þessi 50 ár hafa verið ótrúlegt ferðalag . Við erum þakklát fyrir traustið sem viðskiptavinir okkar hafa sýnt okkur í gegnum árin. Við þökkum einnig okkar frábæra starfsfólki sem leggur sig fram dag eftir dag til að tryggja að allt gangi upp.

Með kveðju, Birgir Palsson , Birgir Arnar Birgisson, Sigurpáll Birgisson , Ómar Már Birgisson og fjölskylda.

Pinnamatur - Fyrir mannfagnaði.Þú pantar þá samsetningu sem hentar fyrir þinn fögnuð eða samkomu. Veitingarnar koma upps...
16/10/2022

Pinnamatur - Fyrir mannfagnaði.

Þú pantar þá samsetningu sem hentar fyrir þinn fögnuð eða samkomu. Veitingarnar koma uppsettar á einnota föt, tilbúin á veisluborðið.

Þú þarft bara að velja og njóta 👩🏻‍🍳🧑🏽‍🍳🍷🎉🥂🍾

https://veislulist.is/pinnabord/

ErfidrykkjaVið bjóðum upp á veitingar fyrir erfidrykkju, hvort sem er í sal eða heimahúsi.Sendu okkur línu og við aðstoð...
29/09/2022

Erfidrykkja

Við bjóðum upp á veitingar fyrir erfidrykkju, hvort sem er í sal eða heimahúsi.

Sendu okkur línu og við aðstoðum þig.

Er vinnustaðasamkoma framundan?Við hjá Veislulist bjóðum upp á glæsilegan pinnamat fyrir ýmis tilefni. Má þar meðal anna...
16/09/2021

Er vinnustaðasamkoma framundan?
Við hjá Veislulist bjóðum upp á glæsilegan pinnamat fyrir ýmis tilefni. Má þar meðal annars nefna standandi veislur, ráðstefnur, starfsmannagleði og aðrar samkomur.

Skoðaður úrvalið hér að neðan og sendu okkur línu ef við getum aðstoðað þig við veisluna. Það er okkar list 👌😊

https://veislulist.is/pinnabord/

Við sjáum um matinn!Við hjá Veislulist bjóðum upp á mikið úrval rétta í erfidrykkjur, árshátíðir, jólahlaðborð, útskrift...
25/08/2021

Við sjáum um matinn!
Við hjá Veislulist bjóðum upp á mikið úrval rétta í erfidrykkjur, árshátíðir, jólahlaðborð, útskriftir ofl.

Sendu okkur línu ef þig vantar upplýsingar og verð fyrir veisluna þína 👩🏻‍🍳🧑🏽‍🍳👨🏼‍🍳

Enn ein stór veisluhelgi að baki, takk fyrir okkur.
21/06/2021

Enn ein stór veisluhelgi að baki, takk fyrir okkur.

Við óskum skyndihjálparmanni ársins 2017 innilega til hamingju með útnefninguna.
21/02/2018

Við óskum skyndihjálparmanni ársins 2017 innilega til hamingju með útnefninguna.

Jónas starfar sem kokkur hjá fyrirtæki sem keyrir út heitan mat, m.a. til ýmissa eldri borgara í Hafnarfirði. Þennan dag er Jónas tiltölulega nýlagður af stað með fullan bíl af matarsendingum þegar hann hringir bjöllunni hjá eldri konu. Hún er sein til svara, sem er ekki óalgengt...

Nú skal blóta Þorra.Til hamingju með Bóndadaginn, njótum Þorrans með ljúffengum þorramat.http://www.veislulist.is
20/01/2017

Nú skal blóta Þorra.

Til hamingju með Bóndadaginn, njótum Þorrans með ljúffengum þorramat.

http://www.veislulist.is

Við óskum ykkur Gleðilegra Jóla og farsælt komandi ár.Takk fyrir árið sem er að líða og með von að árið 2017 verði ykkur...
23/12/2016

Við óskum ykkur Gleðilegra Jóla og farsælt komandi ár.
Takk fyrir árið sem er að líða og með von að árið 2017 verði ykkur gæfuríkt.

Skötuhlaðborðið er komið í gang, salurinn að fyllast og við hlökkum til að sjá ykkur.http://www.veislulist.is
23/12/2016

Skötuhlaðborðið er komið í gang, salurinn að fyllast og við hlökkum til að sjá ykkur.

http://www.veislulist.is

Hver er farinn að hlakka til Skötuveislu, allavega erum við orðnir spenntir, búnir að smakka skötuna og hún var æðisleg....
05/12/2016

Hver er farinn að hlakka til Skötuveislu, allavega erum við orðnir spenntir, búnir að smakka skötuna og hún var æðisleg.

Við erum með Skötuhlaðborð í veislusal okkar í hádegi Þorláksmessu, byrjaðir að bóka í salinn.
Verð 4.000 kr á mann.
Sjáðu nánar á http://bit.ly/2gUIpr6

http://www.veislulist.is

Address

Hólshraun 3
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00
Saturday 08:00 - 16:00
Sunday 08:00 - 14:00

Telephone

+3545551810

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Veislulist posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category