13/08/2022
Kæru vinir.
Eftir 2 frábær ár höfum við ákveðið að loka veitingastaðnum okkar. Allavega í bili, því hver veit nema okkur detti í hug að opna hann aftur einn daginn.
Þetta hefur verið ævintýri frá fyrsta degi. Við höfum eignast óteljandi nýja vini og búið til skemmtilegar minningar.
Við erum ykkur Hornfirðingum sérstaklega þakklát fyrir að hafa tekið þátt í þessu með okkur. Við sjáum ekki eftir einni mínútu!
Við hlökkum til að eyða með ykkur síðustu dögunum, en sá allra síðasti verður föstudagurinn 26.ágúst.
Opnunartímar í ágúst verða sem hér segir:
Þri 16.08
Mið 17.08
Fim 18.08
Fös 19.08
Lau 20.08
Þri 23.08
Mið 24.08
Fim 25.08
Fös 26.08
Opið 17:00-23:00
Eldhúsið opið til 21:30
Takk, takk og aftur takk!
Kv Krakkarnir á Úps.