Our Story
Gamla húsið Bjargarsteinn var byggt sem heimili við Vesturgötu 64 á Akranesi árið 1908 og var heimili til ársins 2008 þegar kirkjan keypti húsið til að fá lóðina undir bílastæði. Fyrirtækið S.Ó. Húsbyggingar tók Bjargarstein að sér fluttu það frá Akranesi til Borgarness. Núverandi eigendur ráku augun í litla húsið þar sem það stóð tilbúið til flutnings með söluskilti á og fengu þá hugmynd að það myndi sóma sér vel sem lítill veitingastaður. Draumurinn var lóð með einstöku útsýni fyrir Bjargarstein, og hún fannst við sjávarkambinn í Grundarfirði. Á lóðinni stóð fyrir gamall beitningaskúr og við hann fiskþurrkunarhjallur. Í október var tekin fyrsta skóflustunga og í fallegu veðri þann 7.12´14 var Bjargarsteinn sóttur. Húsin voru gerð upp, byggt var við Bjargarstein. Og þann 31.7´15 var svo opnaður veitingastaðurinn Bjargarsteinn Mathús. Sjá má myndir af framkvæmdum hér á facebook-síðu staðarins.
In the harbour area of Grundarfjörður town, stands a small house named Bjargarsteinn. The house was transported 140 kilometers from Akranes town to its current location, where it has a new role as a restaurant. Bjargarsteinn House of food is a local family owned restaurant. The menu is seasonal, created by chef Gunnar Garðarsson with a focus on local produce. All meals are made from scratch. Enjoy a nice meal in a warm and romantic atmosphere with a view over the ocean and Mt Kirkjufell.