13/10/2026
Á morgun miðvikudag milli kl 16 og 17 ætlar Hörður Valsson - Hölli Vals, að tylla sér niður á kaffihúsi Bakkabræðra og spjalla við fólk sem deilir áhuga á að stofna áhugahóp um uppbyggingu atvinnulífs, viðburði, menningu- og listir í sveitarfélaginu Dalvíkurbyggð. Allar hugmyndir vel þegnar. Ef fólk vill hafa samband við Hörð sjálfan þá er hægt að ná á honum í síma 832-4685 eða með tölvupósti á [email protected].