23/05/2026
Ég fékk verðlaunahljóðmanninn, Gunnar Árnason og leikarann frábæra og nýkjörinn borgarfulltrúa Rúnar Frey Gíslason til þess að gera hljóðmynd af þremur sögum úr bók minni Trunt, Trunt - sögur af fólki, álfum og tröllum fyrir nokkrum misserum og það tókst ljómandi vel. Hef síðan verið að bæta í sarpinn með Gunnari, þýða og lesa inn sögurnar á ensku, þýsku, frönsku, ítölsku, hollensku, spænsku og pólsku. Þetta er nú aðgengilegt á Youtube. Sjá hlekk hér að neðan í fyrsta kommenti. Smella og hlusta, ég lofa að þú verður ekki fyrir vonbrigðum.
I got the award-winning sound engineer, Gunnar Árnason and the wonderful actor and newly elected city councilor Rúnar Freyr Gíslason to make an audio version of three stories from Fossatún book Trunt, Trunt - stories of people, elves and trolls a few months ago and it turned out brilliantly. I have since been adding to the mix with Gunnar, translating and doing the stories in English, German, French, Italian, Dutch, Spanish and Polish. This is now available on Youtube. See the link below in the first comment. Click and listen, I promise you will not be disappointed.