Brekka Hrísey

Brekka Hrísey Brekka er veitingahús og gistiheimili staðsett í Hrísey, Eyjafirði. Við bjóðum uppá góðan mat með úrvals hráefni og leggjum áherslu á notalega stemningu.

Um Brekku:
Brekka er glæsilegt veitingahús sem starfrækt hefur verið frá 1984, sem gerir það að elsta steikhúsi á Íslandi. Við bjóðum uppá eitthvað fyrir alla, stórar steikur, glænýjan fisk úr Eyjafirðinum, hamborgara, pizzur, kökur, gott kaffi og margt fleira. Þá erum við með bar með góðu úrvali af bjór og leggjum áherslu á íslenska framleiðslu. Allt okkar brauð er heimabakað og sérstaklega unni

ð að því að nota sem mest hráefni úr heimabyggð og nágrenni. Brekka er einnig gistihús með gistipláss fyrir 8 fullorðna, í fjórum herbergjum. Þrjú herbergi eru með hjónarúmi og eitt með tveimur aðskildum rúmum. Vaskur er á öllum herbergjum en snyrting og sturta er sameiginleg á gangi. Um Hrísey:
Eyjan er ævintýraheimur út af fyrir sig sannkölluð "perla Eyjafjarðar". Hún er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey. Þar er mannlífið skemmtilegt, náttúran blómleg, útsýni stórfenglegt um allan fjörð og fuglalífið engu öðru líkt. Að ganga um hellulagðar götur bæjarins eða rölta um fallegar gönguleiðir í návígi við náttúruna og sjóinn, er einstök upplifun. Hrísey er um 7,5 km á lengd og 2,5 km á breidd þar sem hún er breiðustað sunnanverðu og í eyjunni búa um 120 manns.

Í Hrísey er frábær sundlaug með barnalaug, rennibraut og heitum potti.

Þá eru tvö söfn sem hægt er að skoða í Hrísey og Gallerí með alls kyns handverki. Samgöngur:
Það er leikur einn að komast út í eyju. Hríseyjarferjan gengur á milli alla daga vikunnar. Sigling út í eyju með ferjunni Sævari tekur aðeins um 15 mínútur. Farið er frá Árskógssandi en þaðan er eingöngu um 25 mínútna akstur til Akureyrar.

Áætlun Sævars:
http://www.hrisey.net/is/page/ny_voraaetlun_saevars/

26/03/2016

opnum kl 18.00 á Brekku í dag Barinn og Lottóið. Allir innilega velkomnir :) Gleðilega Páska

06/02/2016

Opnum kl 16.00 á Brekku í dag allir innilega velkomnir :)

26/12/2015

opnum kl 17.00 á Brekku í dag Barinn og lottóið :) verið velkomin

05/12/2015

Því miður verður Lokað á Brekku í dag vegna Veðurs

14/11/2015

Opið er á Brekku eins og venjulega á laugardögum :) Barinn og að ógleymdu lottóinu Allir innilega Velkomnir

10/10/2015

Boltinn í beinni í dag á Brekku kl.16. Tilboð á köldum á krana og hamborgurum. Allir velkomnir.

29/08/2015

Boltinn í Beinni á Brekku í dag og að sjálfsögðu Boltatilboð á köldum Á krana Allir Innilega velkomnir

22/08/2015

kæru Hríseyingar og gestir Við ætlum að hafa Happy Hour áBrekku í kvöld milli kl 21.00 og 22.00 :) Þannig að 2 fyrir einn af öllu á barnum í 1 klt !! Verið velkomin :):)

08/08/2015

Brekka er með yndislega kósý og homy herbergi ef þið viljið gista og gera td eitthvað suprise og rómó fyrir maka ykkar td . Herbergið fyrir 2 kostar aðeins 15.900 kr en litla svítan okkar eins og hún er kölluð kostar 18.900 kr fyrir tvo og ferjan fer á 2 klt fresti frá árskógssandi :):)Ps Svo er að sjálfsögðu dásamlega rómantískt að fá sér göngutúr út í vita um miðnætti og horfa á sólarlagið það er beauty

02/08/2015

Kæru hríseyingar og gestir Stórleikurinn verður í beinni hér á Brekku að sjálfsögðu kl 14.00 !! í dag og að sjálfsögðu tilboð á Köldum á krana!!!!!! . Verið Innilega velkomin Kv. Arnar og Anna Brekku Hrísey:)

Address

Brekkugata 5
Akureyri
630

Telephone

8618663

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brekka Hrísey posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Brekka Hrísey:

Share

Category