25/07/2023
Helgina 28. – 30. júlí verður líf og fjör í Gamla barnaskólanum Skógum í Fnjóskadal. Þar ætla systurnar frá Tungunesi að bjóða upp á gómsætar veitingar auk þess sem matar- og handverksmarkaður verður í gamla Bjarmasalnum.
Föstudagskvöld kl. 18 – 21: kjúklingasúpa með heimabökuðu brauði að hætti Svölu.
Laugardagur kl. 13 – 17: kaffihlaðborð með áherslu á það gamla og góða.
Sunnudagur kl. 13 – 17: kaffihúsastemming.
Verð: súpa 2500 kr, kaffihlaðborð 12 ára og eldri 3000 kr, 6 – 11 ára 1500 kr, frítt fyrir 5 ára og yngri. Enginn posi en hægt verður að millifæra í heimabanka.
Handverks- og matarmarkaður laugardag og sunnudag frá klukkan 13 -17
Laugardagur:
Hólmfríður Erlingsdóttir: heimabakað brauð t.d. fjallagrasabrauð og vínarbrauð
R-rababari: vörur úr rababara m.a. saft, sultur, chutney og pæ
Laugardagur og sunnudagur:
Sirrý Poulen: ýmsir nytjahlutir úr bútasaumi, m.a. fyrir örbylgjuofninn
Gallery Lilja: jurtalitað einband úr Tálkafirði
Bryndís Valtýsdóttir: handunnar glervörur
Hjördís Valtýsdóttir: kleinur og soðiðbrauð
Huldubúð: pestó, sultur o.fl.
Margrét Pálsdóttir: sýnishorn af súkkulaðiskreytingum
Ásrún Karlsdóttir: Akryl listaverk
Svala Stefánsdóttir: sýnishorn af útsaumi í vél, vöggusett og ýmis þjónusta við rúmfatnað
Ásta Stefánsdóttir: smekkir, ungbarnasett og barnafatnaður