13/01/2025
Biggi rauði er sannarlega einn af okkar uppáhalds, þær eru fáar vikurnar sem hann hefur ekki droppað við síðan við opnuðum...fyrir að verða 15 árum!
Biggi og Rannveig eignuðust tvíbura i byrjun desember, sem var aðeins of snemmt og þurfa þau því að dvelja fyrir sunnan i nokkar vikur til viðbótar, hér á Akureyri er eldri gaurinn þeirra í góðu yfirlæti en það kostar sitt að reka tvö heimili....
Okkur langar að bætast i hóp baklands þeirra og ætlum því að skella í góðgerðaborgara, við höfum gert þetta nokkrum sinnum áður og styrkt nokkra með ykkar aðstoð - nú keyrum við í Big Red 🍔