Sultusjoppa Svönu

Sultusjoppa Svönu Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Sultusjoppa Svönu, Miðbraut 11, Akureyri.

Gaman er að segja frá því að í dag, 31. ágúst 2024 er Sultusjoppa Svönu 5 ára. 🎉🤣Þessi mynd af Sigga mínum sölumanni er ...
31/08/2024

Gaman er að segja frá því að í dag, 31. ágúst 2024 er Sultusjoppa Svönu 5 ára. 🎉🤣
Þessi mynd af Sigga mínum sölumanni er tekin í Iðnaðarsafninu á Akureyri 31. ágúst 2019.
Síðan þá hefur sjoppunni aldeilis vaxið fiskur um hrygg. Nú er haldin rabarbarahátíð sjoppunnar á hverju sumri á Klukkustrengjaheimilinu í Hrísey og þá kemur heilt teymi frá höfuðborginni til aðstoðar. ❤️
Sultusjoppan á sér fjölda velunnara sem styrkja hana margvíslega, en sjoppan er óhagnaðar drifin og hefur það eina markmið að gleðja og láta gott af sér leiða. Takk allir sem hafa hvatt okkur og hrósað, hjálpað og stutt. Við hlökkum til næstu 5 ára. 😄🎉🌸

Yndislegur dagur, Rabarbarahátíðin okkar í gær, haldin í 3ja sinn. Fjöldi fólks kom og heimsótti okkur og skoðaði líka K...
14/07/2024

Yndislegur dagur, Rabarbarahátíðin okkar í gær, haldin í 3ja sinn. Fjöldi fólks kom og heimsótti okkur og skoðaði líka Klukkustrengjaheimilið.
Allir svo glaðir, hvetjandi og góðir.
Takk fyrir komuna ❤️

Sultusjoppan er á Klukkustrengjaheimilinu.Opið laugardaginn 13. júlí kl. 13-17Velkomin 😄😎🌻
10/07/2024

Sultusjoppan er á Klukkustrengjaheimilinu.
Opið laugardaginn 13. júlí kl. 13-17
Velkomin 😄😎🌻

08/07/2024
Vissir þú að: -formæður þínar notuðu rabarbararót til að lita ullarbandið sitt- gömul rabarbararót minnir á sæta kartöfl...
07/07/2024

Vissir þú að:

-formæður þínar notuðu rabarbararót til að lita ullarbandið sitt
- gömul rabarbararót minnir á sæta kartöflu og gefur gulbrúna liti
- hægt er að fá fallega ljósgula og gulbleika liti úr rabarbararótinni með því að bæta pínulitlu ediki eða salmiaki útí litunarpottinn
- litir úr rabarbararót endast mjög vel

sumarkveðja úr Miðbraut 😎🌼
SD

fylgist með 😎
06/07/2024

fylgist með 😎

Vissir þú að þegar þú kaupir af Sultusjoppu Svönu í Hrísey þá ert þú að: - styðja við uppeldi og velferð barns sem varð ...
06/07/2024

Vissir þú að þegar þú kaupir af Sultusjoppu Svönu í Hrísey þá ert þú að:

- styðja við uppeldi og velferð barns sem varð fyrir miklu áfalli og á ekkert bakland

- þú ert að kaupa 100% handgerða afurð úr Hrísey

- þú ert að kaupa afurð í endurnýttum umbúðum

Söludagur og staður auglýst síðar. 🌼💕😄

rabarbarasaftin mín, blönduð með vatni/sódavatni - ég tala nú ekki um með smá freyðivíni er drottninga drykkur 😄😋
05/07/2024

rabarbarasaftin mín,
blönduð með vatni/sódavatni - ég tala nú ekki um með smá freyðivíni er drottninga drykkur 😄😋

05/07/2024
Sultusjoppa Svönu Miðbraut 11 Hrísey.OPIN í DAG 26. júní  frá kl. 13-15 😄🌈❤️Á nokkrar vinsælar sultukrukkur eftir frá hi...
26/06/2024

Sultusjoppa Svönu Miðbraut 11 Hrísey.
OPIN í DAG 26. júní frá kl. 13-15 😄🌈❤️
Á nokkrar vinsælar sultukrukkur eftir frá hinsegin dögunum. Litlar krúttlegar krukkur, annarsvegar með rabarbarahlaupi og hinsvegar með rabarbara/engifer/sítrónusultu. Góðar með ostum og kexi og líka sniðugar til gjafa.
Velkomin milli 13-15 í dag, miðvikudag 26. júní. 😄😎

26/11/2023

Sultusjoppa Svönu er tómstundastarf Svönu Dan. Sultusjoppan leggur áherslu á nýtingu rabarbara sem og á endurnýtingu á glerkrukkum og 750 ml. glerflöskum.
Allt söluandvirði afurðanna rennur alltaf til barna á Íslandi.
Kærleikur og friður❤️☮️🎄

Address

Miðbraut 11
Akureyri
630AKUREYRI

Telephone

+3546978210

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sultusjoppa Svönu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sultusjoppa Svönu:

Share