Tjöruhúsið

Tjöruhúsið Tjöruhúsið er fiskveitingastaður á Ísafirði. // Tjöruhúsið is a fish restaurant in Ísafjörður.
(1)

Hæ,okkur áskotnuðust ostrur. Við ætlum að hittast nokkur í Tjöruhúsinu í dag um og uppúr kl 16 -í aðdraganda sólmyrkvans...
12/08/2026

Hæ,

okkur áskotnuðust ostrur.

Við ætlum að hittast nokkur í Tjöruhúsinu í dag um og uppúr kl 16 -í aðdraganda sólmyrkvans - og gæða okkur á ostrum og freyðandi víni, hlusta á góða tónlist, spjalla saman og hafa það gott.

Við höldum að það sé gaman að fylgjast með ‘myrkvanum í nágrenni Tjöruhússins. Stjörnu-Sævar var í mat um daginn og hélt því fram að hann sæist vel úr Neðstakaupstað, í það minnsta. Hann er mjög klár. Sömuleiðis er okkar trú að það sé gaman að gera S sér tilefni úr svona viðburðum og njóta aðeins lífsins.

Þú ert velkomin/n. Ef þér langar að vera með og ykkur, er sniðugt að hafa samband svo við getum tekið frá sæti. Það er svona takmarkaður aðgangur hjá okkur, ekki endalaust pláss. Það er hægt að gera hér á feis eða í síma 456 4419.

Til sölu verða ostrur og með þeim. Ætlum að vera með þrjár gerði af dressingu og hresstum upp á kampavínssafnið okkar af tilefninu.

Verð er sem hér segir

* 3 ostrur - 2500
* 6 ostrur - 4.800
* 12 ostrur - 7.500
* 6 ostrur og kampavínsflaska - 25.000
* 6 ostrur og prosecco flaska 12.000
* ostra og kampavínsglas - 3.000
* ostra og glas af prosecco - 2.200
* ostra - 900

Sjáumst hress, sem flest!

TÓNLEIKAR! SÓLMYRKVADAGINN 12/08/2026 KL 23:30RAKELSALÓME KATRÍNALLIR AÐ MÆTA!
11/08/2026

TÓNLEIKAR!

SÓLMYRKVADAGINN 12/08/2026 KL 23:30

RAKEL

SALÓME KATRÍN

ALLIR AÐ MÆTA!

TÓNLEIKAR ANNAÐ KVÖLD! TJÖRUKVARTETTINN MÆTIR OG DJASSAR ÞIG Í DRASL!Sunnudaginn 2/8 kl. 22:30 sirka!Ekki gleyma góða sk...
01/08/2026

TÓNLEIKAR ANNAÐ KVÖLD!

TJÖRUKVARTETTINN MÆTIR OG DJASSAR ÞIG Í DRASL!

Sunnudaginn 2/8 kl. 22:30 sirka!
Ekki gleyma góða skapinu!

Tónlistarhátíðin góða, Við Djúpið ()  , hefst í dag hér á Ísafirði og sem tónlistarelskendur miklir erum við Tjöruhúsgen...
17/06/2026

Tónlistarhátíðin góða, Við Djúpið () , hefst í dag hér á Ísafirði og sem tónlistarelskendur miklir erum við Tjöruhúsgengi í skýjunum með alla dagskrána og gleðina! Af því tilefni ætlum við líkt og fyrri ár að efna til sérstaks Við Djúpið-kvöldverðar í kvöld kl 22:30!

Þessir miðnæturkvöldverðir hafa alltaf verið sérlega skemmtilegir og fólk jafnvel brostið í söng og dans, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var í gamladaga og sýnir m.a. Salóme okkar Katrínu og Halldór Smárason í góðu glensi!

Takmarkað aðgengi er á þennan hátíðarkvöldverð, sem er sko bara venjulegur Tjöruhúskvöldverður nema aðeins seinna. Eitthvað er eftir af sætum, þannig að um að gera setja sig í samband ef áhugi er fyrir.

Annars fer sumarið bara vel af stað hjá okkur, nóg af góðum fiski og allir í stuði! Hefur verið gaman að hitta þau ykkar sem hafa komið og okkur hlakkar til að sjá þau sem enn eiga eftir að koma.

Gleðilegt Við Djúpið öll sömul! Rokk on you crasy diamonds!

Tjöruhúsið kunngerir: það er opið og allir í stuði! Næstu tvær vikurnar verðum við með kvöldverð og hádegisverð í Tjörun...
09/04/2026

Tjöruhúsið kunngerir: það er opið og allir í stuði!

Næstu tvær vikurnar verðum við með kvöldverð og hádegisverð í Tjörunni fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga! Og eftir það verður eiginlega bara alltaf opið!

Pantið borð hér á feis eða í síma 456-4419!

🐟🐟🐟

(PS módelið er hinn myndarlegi Elías Ari. Ekki enn farinn að elda hjá okkur, en það er farið að styttast í það eins og sjá má).

//

Tjöruhúsið proclaims: Yes! We are open!

For the next two weeks, we'll be doing lunch and dinner Thursday through Sunday. After that, we'll be open pretty much all the time!

Reserve your spots right here or by calling 456-4419!

🐟🐟🐟

(PS - pictured is the one and only Elías Ari. He doesn't work in our kitchen... yet. Give it a year or two).

Nú er hreinlega allt að fara gerast! Stefnir í rrrrrosalega Aldrei-hátíð - við erum allavega farin að pússa buffalóskóna...
23/03/2026

Nú er hreinlega allt að fara gerast! Stefnir í rrrrrosalega Aldrei-hátíð - við erum allavega farin að pússa buffalóskóna og safna í dredda! En við ætlum ekki bara að dansa við ljúfa tóna Skítamórals, nei, við ætlum líka að framreiða ljúffengar fiskveislur í Tjöruhúsinu alla páskana!

Það er þegar búið að panta slatta, þannig að sjálfsagt ekki seinna vænna að hafa samband og tryggja sér sæti þessa páskana! Hægt er að senda skilaboð hér, tölvupóst á [email protected] og svo hringja í 456-4419 (á sæmilega kristilegum tímum).

Yfir Dymbilvikuna verður borðhald sem hér segir:

Miðvikudagur:
Hádegi 12-14:00
Kvöld 19:00

Skírdagur:
Hádegi 12:00-14:00
Kvöld 18:00 og 20:30

SKÚLI MENNSKI - TÓNLEIKAR KL. 22:30

Föstudagurinn Langi:
Hádegi 12:00-14:00
Kvöld 18:00 og 20:30

Laugardagur fyrir Páska
Hádegi 12:00-14:00
Kvöld 18:00 og 20:30

Páskadagur:
Hádegi LOKAÐ
Kvöld 18:00 og 20:30

Annar í Páskum
LOKAÐ

Og svo er bara komið sumar (er það ekki?) og við búin að opna! Með nokkrum undantekningum! Hvílík gleði! En gaman!

//

Wow guys! It certainly looks like everything is indeed about to happen! This year's Aldrei festival looks like it's going to be killer - we, at least, are already hard at work polishing our Buffalo-shoes and growing out our whiteboy dreads to ensure we are party ready.

But, we are not only going to be dancing to the delightful sounds of Skítamórall over Easter, nope. We also plan on serving up our delicious fish feasts for anyone who's interested (and has money)!

Folks have already been reserving like crazy for Easter-week, so it's probably a good idea for you to do the same sooner than later! You can reserve a table by DM-ing us here on face, by emailing [email protected] or calling 456-4419 (during Christian hours).

For Easter week, our opening hours will be as follows:

Wednesday:
Lunch 12-14:00
Dinner 19:00

Maundy Thursday:
Lunch 12:00-14:00
Dinner 18:00 og 20:30

SKÚLI MENNSKI - CONCERT AT 22:30

The Good Friday:
Lunch 12:00-14:00
Dinner 18:00 og 20:30

Saturday before Easter
Lunch 12:00-14:00
Dinner 18:00 og 20:30

Easter Sunday:
Lunch CLOSED
Dinner 18:00 og 20:30

And then it's basically summer, and we are open for fishness!

See you soon!

Indverskur matur! Indian food! Það varð allt vitlaust í indverska matnum á síðustu helgi og færri fengu en vildu! Vegna ...
18/03/2026

Indverskur matur! Indian food!

Það varð allt vitlaust í indverska matnum á síðustu helgi og færri fengu en vildu! Vegna fjölda áskorana höfum við því ákveðið að slá þessu upp í kæruleysi og endurtaka leikinn á komandi helgi!

Allskonar ljúffengar kræsingar í boði til heimtöku frá kl. 17-20 föstudag og laugardag! Æskilegt er að pantanir berist fyrir kl. 17 samdægurs (en það má alltaf reyna)! Námsmenn fá sértilboð ef þeir muna að kynna sig sem slíka!

Höfum það gott og gaman og hlýjum okkur í vetrarríkinu, með aðstoð Ganesar og félaga!

Pantanir í síma 456-4419 eða hér á feis! Sjá matseðil í komments!

Indverskur matur! Indverskur matur! Shayan er snúin aftur úr viðburðaríku ferðalagi á heimaslóðir sínar í Indlandi, með ...
10/03/2026

Indverskur matur! Indverskur matur!

Shayan er snúin aftur úr viðburðaríku ferðalagi á heimaslóðir sínar í Indlandi, með farteskið fullt af spennandi kryddum og uppskriftum! Af því tilefni ætlum við á Tjöruhúsinu að bjóða upp á indverska matinn hennar til heimtöku þessa helgina, en þar verða ljúffengar nýjungar í bland við hennar ástkæru rétti á boðstólnum!

Engiferkjúklingurinn er ótrúlegur! Ótrúlegur! Einmitt það sem þarf til að hlýja kroppnum og efla andann í þessum tíðaranda!

Panta má í síma 456 4419 eða með skeyti hér á feis - helst fyrir kl 16 samdægurs (en það má alltaf reyna)! Pantanir eru afgreiddar milli kl. 17-20 föstudaginn 13. mars og laugardaginn 14. mars!

Matseðill í athugasemdaglugganum!

Hlökkum til að heyra í ykkur!

ATH! INDVERSKUR MATUR! // ATTN! INDIAN FOOD! Brjálað að gera á aðventunni? Enginn tími til neins? Kári í jötunmóð? Hví e...
17/12/2025

ATH! INDVERSKUR MATUR! // ATTN! INDIAN FOOD!

Brjálað að gera á aðventunni? Enginn tími til neins? Kári í jötunmóð? Hví ekki grípa með heim ljúffengan indverskan mat frá Shayan okkar og taka smá pásu frá jóla-önnum? Hann verður einmitt boði nú á föstudag og laugardag, frá kl. 17:00-20:00! Pantanir berist hér á feis eða í síma 456-4419, helst fyrir kl 17 samdægurs (en það má alltaf reyna!).

Matseðill í comments!

Address

Neðstikaupstaður 1
Ísafjörður
400

Opening Hours

Tuesday 12:00 - 14:00
18:00 - 23:00
Wednesday 12:00 - 14:00
18:00 - 21:00
Thursday 12:00 - 14:00
18:00 - 21:00
Friday 12:00 - 14:00
18:00 - 21:00
Saturday 12:00 - 14:00
18:00 - 00:00
Sunday 12:00 - 14:00
18:00 - 23:00

Telephone

+3544564419

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tjöruhúsið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Tjöruhúsið:

Share