23/12/2025
Kæru vinir.
Hún Ronja okkar hefur ákveðið að hreinsa af lagernum og bjóða ísinn sinn til sölu núna um hátíðarnar. Hver einasta króna sem kemur inn rennur beint í sjóð til að styrkja Gunnar Inga vin okkar, sem á fyrir höndum langa og stranga endurhæfingu eftir alvarlegt umferðarslys í október. Við ætlum sömuleiðis að leggja allan hagnað af íssölu síðasta sumars og hausts í sjóðinn.
Því miður getum við aðeins boðið upp á mjög takmarkað magn af ís, en bragðtegundirnar eru eins og fyrr. Júgurbólga (vanilla og kókos), Kúamykja (súkkulaði) og Klaufsýking (piparmynta).
Ef þú vilt leggja góðu málefni lið og tryggja þér um leið úrvals ís til að stelast í um hátíðarnar, þá máttu endilega láta vita með athugasemd hér fyrir neðan og við komum með ísinn heim að dyrum.
Lítil dolla af ís (350 ml) kostar 800 kr. Stór pakkning af ís (4,5 lítrar) kostar 8.000 kr.
Fjölskylda Gunnars Inga Hákonarsonar safnar nú fyrir hann og móður hans, Jónu B. Brynjarsdóttur, til að mæta miklum kostnaði vegna endurhæfingar Gunnars Inga. Gunnar Ingi og Jóna eru búsett á Ísafirði en dvelja Reykjavík svo Gunnar Ingi geti sinnt endurhæfingu á Grensás. Hann lenti í umferðarslysi í október þegar hann missti meðvitund undir stýri og bíllinn rann út í sjó.